Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

20.3.2009 10:26

Veðurklúbburinn Lundi


Heil og sæl.

Við hjá Veðurklúbbi Lundar komum saman þann 11.mars kl. 16. Setti Jón Þórðar fund að venju og las ritari fundargerð, og gat Jón einnig að, nú væri fullt tungl og veðrið væri eins og best væri á kosið.

Veðurklúbburinn okkar fagnar 2 ára afmæli um þessar mundir nánar tiltekið 14 mars nk.

Gestur okkar í dag var Ingibjörg Ólafsdóttir sagnfræðingur. Ingibjörg er dóttir Ólafs heitins Björnssonar læknis er starfaði hér á Hellu um árabil, en Minningarsjóður Ólafs Björnssonar var stofnaður í minningu hans.

Ingibjörg sagði okkur að hún ætti bara góðar bernskuminningar héðan en hún flutti héðan 10 ára gömul.

Haft var samband við hana að vinna að útgáfu rits um fyrstu uppbyggingarár Hellu, og vinnur hún að safna gögnum um það verkefni sem að öllum líkindum er viðamikið. Eru allar frásagnir frá gömlu árunum þegar Hella var að byggjast upp vel þegnar. Símanúmerið hennar er 895-6882.

Þá var það spáin okkar sem aldrei klikkar J

Edda Magnúsd. Spáir góðu veðri, gæti komið smávegis páskahret, Hjalta dreymdi fulla rétt af fé sem hann útleggur sem smávegis af snjó, Hrefna spáði góðu áfram, Maggi Kjartans og Bryndís dóttir hans vildu ekki sjá páskahret en að það frysti eftir helgi.

Bjarnhéðinn spáði N átt og björtu veðri, Brynjólfur sagði að Góan væri ekki búin og að veðrið yrði svipað út Góuna síðan meira sól J Ragnhildur og Gerður dóttir hennar spáðu að bænadagar kæmu með hreytingi síðan óráðið.

Þeir Jón Helgason og Guðni frá Þverlæk spáðu að sjálfsögðu í bundnu máli:

Frá Jóni

Næðingur úr norðri er

Núna bara segi

Svipaður hann sýnist mér

Og skyldur öskudegi.

Frá Guðna

Þó næstu vikur stormur víða þeysi

Verður því þannig varið

Að Útmánaða úrkomuleysi

Einkennir allt veðurfarið.

Á þennan veðurfund mættu 22 .


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn