Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

12.3.2009 09:04

Veðurklúbburinn Lundi


Jón Þórðarsson setti fundinn . Fundargerð síðasta fundar var lesin upp.

Gestir fundarins voru Ágúst Sæmundsson og kona hans Guðrún Jóna Haraldsóttir.

Ágúst Sæmundsson sem er oftast kallaður Gústi fæddist að Þorleifstöðum á Rangárvöllum 19.sept. 1923. Þorleifstaðir fóru í eiði 1947. Skólaganga Gústa var ekki löng en hana stundaði hann að Strönd hluta úr þremur vetrum. Árið 1944 fluttist Gústi að Hellu með foreldrum sínum en á þeim tíma var Hella að byggjast upp og ekki voru nema nokkur hús þá í þorpinu og voru það t.d. Nes, Brúarland, Helluland, Eyrarland og Kaupfélagið Þór.

Gústi sagði í stuttu máli frá uppvaxtarárum sínum og veðurfari. Sérstaklega nefndi hann fannfergi mikið er var í feb 1931.

Guðrún Jóna eða Aggý eins og við þekkjum hana, er fædd 21. Okt . 1931, hún er elsta barn foreldra sinna. Hún er Reykvíkingur, átti heima í Skuggahverfinu sem barn. Skólaganga Guðrúnar var þó nokkur . Hún gekk í Austurbæjarskóla og Laugarnesskóla. Guðrún lauk fullnaðarprófi sem þá var. Guðrún sagði í stuttu máli frá uppvaxtarárum sínum austur í Fljótshlíð, fór hún 17 ára að vinna á Tumastöðum og það var þá sem hún hitti Gústa verðandi mann sinn.

Spá dagsins.

Guðni : Bendir á það að í dag sé nýtt tungl og hann spáir að það verði svalara næstu tvær vikur.

Bjarnhéðinn spáði norðan átt og björtu veðri.

Davíð spáði hægviðri út veturinn og tók Hrefna undir það.

Billi spáði svipuðu út Góu og meiri sól.

Jón kaldi spáði kólnandi og Gunna V svipuðu veðri áfram en páskahret öðru hvoru megin við páska.

Bragi spáði bara góðu veðri

Hjalti spáði sama veðri og verið hefur.
Ragnhildur spáði ekki engu að þessu sinni en Jagga spáði auðu um páska og góðu vori.

Jón Þórðar spáir kulda og góðu vori.
Snæja spáði snjó en það er eins og venjulega með hana þetta er ekki nema óskaspá.

Gústi segir í lokin mikla snjósögu sem var á árunum 1947 – 1949 þegar snjókoma var svo mikil frá kl.16 og til morguns daginn eftir, að snjórinn náði mönnum upp að mitti.

Vísur

Guðni fór með þessa

Ég er oft með þvætting og þvaður
Og þrykki því niður á blað
En daufur er dellulaus maður
Og drottin fyrirgefur það.

Jón kaldi fór með þessa

Andan hefur alveg skort
Er það mjög til baga
Enda hef ég ekkert ort
Undan farna daga.

Og Guðni aftur

Í klúbbinn leita í lindi glaður
Þó læðist í spána villa
En öskudagsins átrúnaður
Ætti engu að spilla

Mættir voru 22 á þennan fund.
Fundaritari Snæbjört Ýrr Einarsdóttir


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn