Menning og Mannlíf
14.1.2009 16:21
Veðurklúbburinn Hellu
Hvítur þorri?
Þann 7.jan. 2009 var haldinn veðurfundur sá fyrsti á nýbyrjuðu ári.
Jón Þórðar setti fund og bauð alla velkomna einnig gestina okkar sem voru hjónin að Þverlæk, í Holtum, þau Margrét og Guðni.
Guðnier fæddur aðÞverlæk 1933 Sótti sem ungur maður Íþróttaskóla í Haukadal, síðan námskeið á vegum Búnaðarsambandsins. Margrét er fædd að Lýtingsstöðum1938. Fer síðan 2 ára að Kothvammi í V-Húnavatnssýslu með móður sinni en hún missti mann sinn. Móðir hennar fór síðan aftur suður sem ráðskona.
Guðni og Margrét hafa búið á Þverlæk með kúabúskap síðan 1957 eða í 44 ár fyrst með foreldrum hans síðan ein, og komu upp fimm börnum.Þegar sonur þeirra tók við kúabúskapnum sneru þau sér alfarið að skógrækt og hafa verið skógarbændur síðan 1990en Margrét hefurhaftáhuga á alls konar ræktun síðan í æsku. Hún sótti nám til þriggja ára við Landbúnaðarháskólann Grænni skógar, og hafa þau hjónin gróðursett um 5-10 þúsund plöntur á hverju ári.
Jón Þórðar minntist tveggja ný látinna manna þeirra Páls Helgasonar frá Kaldárholti og Þorsteins Oddssonar frá Heiði á Rangárvöllum en þeir mættu undartekningalítið á fundina okkar.
Spá Lundar:
Hrefna segir að verði svipað og verið hefur sem sagt gott fram að Þorra þá breytirí smjó og kulda,
Ingigerður og von á svipuðu veðri fram að Einmánúði, Jagga spáir góðum vetri og þó jólin hafi verið rauð, verði ekki hvítir páskar heldur auðir en með smávegis undantekningum, var Steinþór á sama þeim Jöggu og Ingigerði, Bragi spáir sama góða veðrinu nema einstaka hríð, Bjarnhéðinn segir að fari að kólna eftir vikursem sagt um miðjan jan., Jón Helga og Brynjólfur spáumhleypingum fram að næsta veðurfundi þá tveggja vikna kulda, þá mun Þorri byrja,
Kristján Bjarnason á Árgilsstöðum var með svipaða spá, harðindi í byrjun Þorra en skánar ílok febrúar, og verði sæmilegt út veturinn, Guðni á Þverlæk spáði í tunglin síðasta tungl kom í SAí 3. í jólum og byrjaði vel, en seinni snjókaflinn sem hann spáði síðast yrði í byrjun Þorra,síðan kæmi nýtt tungl 27.jan. í austri, hlýnar þáí byrjun Góu, Jón Þórðar var sammála þeim Guðna og Kristjáni. Að lokum látum við nokkrar vísur til gamans fylgja með enda lágu þeir ekki á liði sínu þeir Guðni og Jón Helga.
Frá Jóni eru þessar:
Virðist mér, nú vætan þétt
vera úti stundum
en andrúmsloft, er alltaf létt,
inn á veðurfundum
Engan mun ég markað get
þó mætir menn það segi
að hækki sól um hænufet
hér á hverjum degi.
Frá Guðna eru þessar: Hugleiðing eftir síðasta fund:
Í veðurspám um snjó oft getur Hekluhrísluverkefnið
snemmfallinn fengum jólasnjó hugsjón góða tel
sjá munum við seinna í vetur yfirstéttarillgresið
svolítið meiri snjó. ætti að þrífast vel.
Fundi slitið kl 17.30.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001