Menning og Mannlíf
19.12.2008 10:39
Veðurklúbburinn Hellu
Ef jól verða rauð, verða hvítir páskar
Þann 10.des héldum hjá Veðurklúbbi Lundar okkar annan fund á aðventunnin og byrjaði hann kl 16.10.
Gestur okkar var Hreinn Óskarsson Skógfræðingur búsettur í Odda á Rangárvöllum. Hreinn er fæddur og uppalinn á Selfossi en á ættir sínar að rekja annars vegar norður í Bárðardal og hins vegar í Fljótshlíðina í Fljótsdal. Hann sótti menntun sína til Danmerkur.
Hreinn er framkvæmdarstjori Hekluskógarverkefnisins og er eini starfsmaðurinn og sækir sér verktaka til starfa þegar þess þarf með.Megintilgangur Hekluskóga sem er samvinnuverkefni Skógræktar og Landgræðslunnar er að verja landið vegna öskufalls með því að endurheimta birkiskóg og kjarr á víðáttumiklum svæðum.
Stöðva fok og jarðeyðingu með sáningu og dreifingu áburðar svo og gróðursetningu á birki og kjarri á góð og skjólrík svæði. Ýmsar fleiri tegundir hafa einnig verið gróðursettar ss melgresi, beringspuntur og lúpína.
Ætlunin er að láta náttúruna sjá um mestan hluta verksins þ.e. að koma á legg trjálundum sem síðan munu mynda fræ og sá sér sjálft. Sl. sumar voru gróðursettar 300 þús. plöntur og næsta sumar er áætlað að þær verði 500 þús og í haust safnaðist 150 kg. af þurru birkifræi.
Einnig getur fólk fengið plöntur og gróðursett sjálft þannig hefur verið gróðursett 60 þús. plöntur. Svæðið er afar víðáttumikið sem telur 90 þúsund ha. Verkefnið er hugsað til næstu 40 ára.
Eftir fróðlegt erindi Hreins og kaffihlé var farið að spá í jóla- og áramótaveðrið.
Steini segir umhleypinga áfram að betra taginu, Inga sagði að þetta skýrðist allt saman þegar þar að kæmi, Jagga spáði góðu fram að jólum, Margrét Ýrr var í jólaskapi og á von á hvítum jólum og Guðrún Jóns studdi það, Benni sagði sami grautur í sömu skál og á von á ágætu veðri um hátíðarnar, Steinþór spáði góðviðri og einnig Bragi og Maggi Kjartans umhleypingum, Billa dreymdi margt hvítt lambfé á húsi en ekkert var þar heyið né jatan og réðu menn drauminn þannig að hvít jörð kæmi með ekki miklum snjó.
Edda spáði hvítri jörð á jóladag einnig á Gamlaársdag.Siðan var það gesturinn okkar hann Hreinn sem sagði að einn illviðrisdagur yrði fyrir jól.
Guðni á Þverlæk spáði tveim snjóaköflum, sá fyrri væri að byrja núna sem yrði styttri með minni snjó og sá síðari yrði lengri með meiri snjó en vildi ekki segja til um hvenær hann kæmi. En aftur á móti var hann með vísu í pokahorninu.
Hún er svona:
Árið líður í undraró
ég oft til veðurs lít
jafnan vill fólk hafa jólasnjó
jólin verð hvít.
Sr. Guðbjörg sem einnig sat fundinn sagði að færi að snjóa á annan dag jóla, einnig las hún úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar sem sagði frá því hvernig fólk hugsaði um dagana í kringum jólin fyrr á tímum og voru þetta eins konar veðurfréttir.
Sé sólskin fagur á jóladag, verður gott ár - sé sólskin annan dag jól, verður hart ár - þegar jóladagur kemur með vaxandi tungli, veit á gott ár, og sé hann góður veit á því betra - þegar hreinviðri er og regnsamt aðfangadag jóla og jólanótt, ætla menn að það boði frostasamt ár, en viðri öðruvísi, veit á betra - ef stillt viðrar seinasta dag ársins, mun gott ár verða, sem fer í hönd - blási fjórðu jólanótt, veit á hart, en blási fimmtu jólanótt, veit á slæmt sumar - blási sjöttu, verður grasvöxtur lítill - blási sjöundu, verður gott ár - blási þrettándu nótt jóla vestanvindur, veit það á frostasumar - ef jól eru rauð, verða hvítir páskar, en rauðir, ef jól eru hvít.
Fundi slitið kl 17.30 22 sátu þennan síðasta fund á þessu ári.
Næsti fundur er áætlaður 7.jan 2009.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001