Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

5.12.2008 11:44

Veðurklúbburinn Lundi


Einn hnoðri í norðri verður að veðri þó síðar verði

Fundur hjá Veðurklúbbi Lundar haldinn þ. 26.nóv. kl 16.00. Jón Þórðar bauð alla velkomna.

Gestur okkar að þessu sinni var Anne Bau búsett á Hellu.

Anne Bau er dönsk að uppruna alin upp í N-Sjálandi. Sagði hún frá sjálfri sér og aðdragandann að því, er hún kom í fyrsta skipti til Íslands 1987 þá til Stykkishólms sem au pair stúlka.

Fór síðan heim til náms, kom síðan aftur á Klakann ásamt manni sínum Ellert Þór Benediktssyni bæði útskrifuð úr námi hún sem líffræðingur og hann dýralæknir.

Hún hefur starfað síðan sem líffræðingur við Landgræðsluna í Gunnarsholti á rannsóknarsviði. Anne sagði okkur frá ýmsu fróðlegu eins og t.d. að Ísland hefur þá sérstöðu að hafa valið að telja fram bindingu kolefnis með landgræðslu sem mótvægisaðgerð við losun í kolefnisbókhaldi.

Þá fengu allir sér hressingu kaffi og með því.

Þá var kominn tími til að rýna í spána fyrir næsta hálfa mánuðinn.

Sr. Guðbjörg á von á eftirvæntingarfullu veðri á komandi aðventu, Steini segir blítt veður og létt og var Benedikt sammála því. Bragi var bjartsýnn og sagði að veðrið yrði gott fram í jan.

Jakobína heldur sig við síðustu spána sína, þ.e. gott fram að jólum og tók Edda Magnúsdóttir í sama streng, Steinþór spáði hreysingi og éljagangi annars góðu og Maggi Kjartans á ekki von á neinum stórviðrum, Bjarnhéðinn aftur á móti spáði snjókomu í kringum 1. des. Billi segir að svipað viðri til 16. des þá byrjar Imbra 17. des og stendur til miðjan feb mætti þá vænta breytinga, Davíð segir svipað áfram, Jón Helga á von á umhleypingum og Hjalti spáir frosti á morgun þ.e. 27 nóv, Jón Þórðar hefur einnig trú eins og fleiri að veðrið blítt áfram en sagði svona í kæringi þetta "Einn hnoðri í norðri verður að veðri þó síðar verði". Að lokum voru þessi spöku orð Önnu Bau þegar hún var spurð um veðrið:

Veðrið fer eftir skapi manns rétt eins og skapið fer eftir veðrinu.

Það var ekki djúpt á vísu hjá Guðna á Þverlæk þegar hann var inntur eftir því, en þá kom þessi:

Snjórinn okkur birtu ber

Breytist aðeins færðin.

Snjórinn kemur og snjórinn fer

Svona er vetrarværðin.

Fundurinn taldi 23 gesti.


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn