Menning og Mannlíf
19.11.2008 08:51
Veðurklúbburinn Lundi
Hlýtt í veðri en vætusamt nóv-jan 2009
Veðurfundur var haldinn þann 5.nóv. í matsal Lundar og setti Jón Þórðar fund kl. 17.05.
Fundargerð lesin upp. Gestur okkar í dag er okkar kunni veðurfræðingur Þór Jakobsson.
Þór sagði að okt hefði verið í kaldara lagi ekki verið jafnkalt í Rvk. síðan 1987, á Stórhöfða var hitinn 1 og ½ stigi undir meðallagi.
Fyrsti vetrardagur var 25.okt og samkvæmt heimildum úr bókinni "Saga daganna" e. Árna Björnsson mun hafa verið sá tími sem gnótt var til af mat eftir uppskeru og sláturtíð og tími fyrir samkomur og veisluhöld hjá norrænum bændum.Annað tengt vetrarkomunni var venja að spá í komandi vetur með ýmsum ráðum t.d. atferli dýra ef mýs gerðu sér snemma holu eða leituðu heim að bæjum, ef spörfunglar hópuðust snemma að bústöðum, vargagangur í hröfnum þóttu boða vetrarhörkur, einnig var rýnt í kindagarnir, svo þótti góð berjaspretta vita á snjóavetur.
Þór las upp úr gamalli bók sem heitir því nafni "Veðrið" m.a. um sléttubönd, en það eru þær ferskeytlur sem bæði má lesa áfram og afturábak án þess að raska bragforminu, las einnig um hafís við norðurland fyrir 100 árum.
Eftir kaffi og nýbakaðar kleinur, var skellt sér í spá fyrir næsta hálfa mánuðinn.
Þór Jakobsson var með spá frá Bresku veðurstofunni um hita og úrkomu fyrir nóv-jan 2009.
Það verður líklega hlýtt m.v. árstíma um V vert landið, en í hlýrra lagi eða hiti í meðallagi. Af úrkomunni er það að segja að líkur eru á að það verði vætusamt V til en óvíst um úrkomu A til
Steini segið svipað áfram, Hrefna spáir rysjóttu áfram, Bjarnhéðinn segir sömu blíðu og í dag verða e-ð áfram, Billi segir að veðrið verði svipað til loka Imbrudaga en þeir byrjuðu 17 sept og lýkur 16.des, Jón Helga telur að umhleypingar áfram í veðrinu, Jagga spáir góðu fram að jólum og Bragi var einnig á góðu nótunum og segir vera blíðu áfram, sem sagt spáin síðan síðast stendur. Guðni spáði í bundnu máli eins og hans er von og vísa:
Uppstyttur fáar sem fegurð veita
Og fjarri hríðir
En stundum verður sull og bleyta
Og stormar tíðir.
Jón Helga spáði einnig í bundnu máli
Það er ekki að því að gá
Þar ég var í vanda
Af því mín væna veðurspá
Virðist aldrei standa.
En það varð Jóni yrkisefni að ritari ruglaði saman höfundum að vísum í fundargerð þann 8.okt. sl. Eru þeir beðnir vilvirðingar á því. En vísan er svona:
Ef að þetta voru hrekkir
Er það ekkert undur
Af því Magga ekki þekkir
Okkur Guðna í sundur.
Jón Þórðar sló botn í fjörlegan fund kl 17.25 sem 25 manns sátu.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001