Menning og Mannlíf
9.10.2008 10:34
Veðurklúbburinn Lunda
Stórviðri og snjóavetur þegar Davíð hættir í Seðlabankanum.
Þann 8.okt.var haldinn fundur hjá Veðurklúbbi Lundar. Jón Þórðar setti fund og bauð gesti velkomna þar með talinn gestinn okkar sem að þessu sinni var Jón Ragnar Björnsson. Ritari las fundargerð.
Jón Ragnar er fæddur að Ölvaldsstöðum í Borgarfirði 1943, ólst við venjuleg sveitastörf. Jón Ragnar lauk Búfræðikandidatsprófi við Landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn . Er hann kom heim frá námi vann hann við hin ýmsu störf tengdum landbúnaði þ.á.m. hjá S.Í.S. Í dag starfar hann hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti. Minntist hann á mikilvægi þess að græða landið, þá skaut Þorsteinn því að, að hann minntist þess að um vorið 1934 hafi verið orðið hvanngrænt, en viku síðar var orðið sandauðn eða því sem næst. Sagði Jón Ragnar að um 1000-1500 gestir heimsóttu Gunnarsholt á ári hverju. Hann vinnur einnig við uppsetningu á vefsíðum fyrir fyrirtæki m.a. bjó hann til vefsíðu Lundar.
Eftir kaffihlé sneri fólk sér að sjálfri veðurspánni.
Steini segir að eins veður verði fram að jólum, Guðni spáði uppstyttum og vætu inn á milli annars væri 2 vikur til vetrarnátta, Bjarnhéðinn segir að áfram verði skin og skúrir, Jón Helga segir að hann verði svona þar til breytir eða þannig, Billi segir svipað áfram sólskin m/ skúrum út okt, að lokum sagði Jón Ragnar að svona verður veðrið gott þar til Davíð hætti í Seðlabankanum en þá breyti í stórviðri með roki og rigningu síðan hörku snjóavetur og vakti þetta kátínu í hópnum.
Auðvitað flugu vísur hægri og vinstri en báðir hagyrðingarnir í hópnum þeir Jón Helgason og Guðni á Þverlæk létu sitt ekki eftir liggja en slógu botninn í fundinn með sitt hvoru vísunni.
Frá Jóni
Vetrarins spá skal vera flott
Þó veðurvitið sé alveg tæmt.
Líklegast verður veðrið gott
Og vonandi ekki mjög slæmt.
Frá Guðna
Áfram líður október
Engu þarf að kvíða.
Haustkálfurinn horfinn er
hér mun verða blíða.
14 manns sátu fundinn
MB.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001