Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

30.9.2008 09:47

Veðurklúbburinn á Lundi


Veðurklúbbur Lundur hélt fund þann 24. sept. sem sagt nú eru 3 mán. til jóla.
Jón Þórðar setti fundinn bauð alla velkomna sem og gestinn okkar sem að þessu sinni var Björgvin Sigurðsson viðsk. ráðherra.
Ritar las fundargerð.
 
Björgvin á ættir sínar að rekjanorður í Húnavatnssýslu í Miðfirði, en hann er fæddur í Rvk. 1970 en 6 ára flytur hann með foreldrum sínum að Búrfellsvirkjun þar sem hann ólst upp og faðir hansstarfaði.
Björgvin býr nú ásamt fjölskyldu sinni á Selfossi eneiga frístundahús á Skarði í Gnúpverjahreppi þar sem þau hafa hesta sína þar. Hann sagði okkur frá framkvæmdum við tvöföldun suðurlandsvegar en nú er umhverfismati að ljúka frá Litlu Kaffistofunni sem boðin verður út í okt-nóv. Þá er stefnan sett á framkvæmdir í Ölfusinu, ný brú við Selfoss, einnig framkvæmdir á Lyngdalsheiði.
 
Eftir kaffihlé var svo spáð í spilin eða bollana væri nær að segja og athugað hvernig haustið legðist í fólkið.
Björgvin býst við góðum vetrien þrátt fyrir þungan fyrravetur þá voru það einungis 3 dagar sem hann komst ekkitil vinnuí Reykjavík.
Steini segir svipað áfram sem sagt þurrkur með skúrum, Hrefna á von á mildum vetri, Steinþór spáði úrkomu áfram en styttir upp í nóv. Ragnhildur hefur trú á góðri tíð fram á haust og tók Dúna í sama streng.
Bragi var á köldu nótunum og spáði snjókomu á næstunni, Jakobína Erlends spáði að það stytti upp og fallegt haust væri framundan alveg fram að jólum, Margrét Ýrr sagði okkur að einum hefði dreymt 3 gráar kindur sem ræðst þannig að eftir 3 mánuði þá gráni jörð. Bjarnhéðinn hefur trú á logni og blíðu í svona 1 mánuð, og Brynjólfur frá Lækjarbotnum spáði blautu áfram. Maggi Kjartans á von á rólegu hausti en gráni er kemur fram í okt. Hjalti hefur trú á snjólitlum vetri og góðum kafla af frosti í svona 4 vikur. Jón Þórðar sagði að lokum að hann hefði trú á mildum vetri.
Indriði Indriðason fjármálastjóri Rangárþings Ytra leitaði til tengdaföður síns með spá vetrarins en sá kom með hana í bundnu máli. Þar með lauk veðurfundi á Lundi sem 27 manns sátu.
Vísurnar eru svona:
 
Eftir sumar yndisblítt
eigum góðan vetrarforða.
Von í huga utan orða,
ennþá megi verða hlýtt.
Haustsins litatöfrar tindra,
taka norðurljós að sindra.
 
Rok þó fari um Rangárþing,
reynist haustið áfram gefa
birtustundir utan efa,
ótt þó sölni gras og lyng.
Veðrabrigði víst ég geini,
varla skulu þó að meini.
 
Haustið verður heldur milt
himintár þó falli víða.
Langt er enn til harðra hríða,
hret þó geti ýmsu spillt.
Stundum vindasamt mun verða
vísast skal það alla herða.
Helgi Seljan


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn