Menning og Mannlíf
15.9.2008 17:43
Veðurklúbburinn á Lundi
Fundur hjá Veðurklúbbi Lundar settur þ. 13.ágúst kl 17.00.
Jón Þórðar bauð fólk velkomið og ritari las fundargerð.
Jón tjáði okkur að gesti okkar mundi seinka örlítið.
En við dembdum okkur beint í veðurspána.
Hundadagar líða senn undir lok eða 23.ágúst, og margir búast við
breytingum um Höfuðdag sem ber upp á 29.ágúst.
Steini, Steinþór og Jakobína voru sammála að veður yrði milt og gott áfram,
Hrefna - breytir um Höfuðdag,
Guðni - segir hann breyti um "gamla" Höfuðdag 4.eða 5.sept.
Ragnhildur og Maggi Kj. sögðu bæði að sama veður ætti að haldast e-ð áfram
eða fram að Höfuðdag,
Bjarnhéðinn á von á það snjói í fjöll, Billi - sól með skúrum eins og
verið hefur undanfarið og tók Hjalti í sama streng eða eins og hann sagði
þurrkur með skúrum.
Um það bil þegar allir voru búnir að leggja orð í belg varðandi spána,
mætti gesturinn okkar sem var Árni Johnsen alþingismaður.
Er við inntum Árna eftir veðurspá, vildi hann frekar spá meinlausu veðri og
mildu langt fram á haust.
Hann sagði okkur frá framkvæmdum hér á suðurlandi m.a. Bakkafjöruhöfn, en
framkvæmdir eru að hefjast og verða opnuð á morgun tilboð á morgun í nýja
ferju. Það eru einungis 10 km. frá Bakka að höfn í Vestm.eyjum og ferjan
yrði að öllum líkindum 18 mín. á milli sem tæki m.a. um 60 bíla.
Árni sagði engu að síður að göngin milli lands og Eyja væru á 10-12 ára áætlun
Lokið er hönnun á tvöföldun á suðurlandsvegi og verður opnuð tilboð á næstaári.
Búið er svo að bjóða í suðurstrandaveg og eftir 1-2 vikur verða þau tilboð opnuð.
Síðan tók Árni mörg lög á gítarinn við góðan fögnuð viðstaddra og sagði gamansögur sem var gaman á að hlýða en Árni er sögumaður góður og segir skemmtilega frá. Vel var mætt á þennan fund eða 29 manns en auðvitað flugu tvær vísur eftir Guðna á Þverlæk
Hugurinn flýgur um víðan völl
í veðurklúbbnum á Lundi
spáin mín verður alveg öll
eins og á síðasta fundi.
þessi vísuð er ætluð Jóni kalda í hans orðastað
Það er orðin mín venja að vona
á veðurspá þeirri aldrei þreytist
að veðrið það mun þráast svona
þangað til það breytist.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001