Menning og Mannlíf
30.7.2008 12:21
Veðurklúbburinn
Verslunarmannahelgin
Verslunarmannahelgarveðrið - Milt en rakt
Veðurklúbbur Lundar hélt fund þann 23.júlí. Setti Jón Þórðarson fundinn og bauð alla velkomna svo og gestinn okkar, Ragnar Böðvarsson sagnahöfund.
Jón byrjaði á því að minnast tveggja heiðursmanna sem nýlega eru látnir þeir Sigurður Ásgeirsson og Óskar Einarsson en þeir mættu undantekningarlítið á okkar veðurfundi og er eftirsjón af þeim.
Ritari las fundargerð.
Gesturinn Ragnar Böðvarsson er fædddurog uppalinní Bolholti á Rangárvöllum 1935 síðar Kaldbak til 1958.
Hann minnist þessí æskuað ef hátt heyrðist í fossinum Búða þá mátti eiga vísan þurrkinn daginn eftir. Talaðium breytta tíma og átakið semsandgræðslan var,minnugursandstormanna hér áður fyrr, en þá var sáð fyrir Melgresi eða Blöðku1944 bættist þá í flóruna fleiri jurtir í kjölfarið.
Rangvellingabók 2.bindi kom út snemma á 9. áratugnum eftir Valgeir Sigurðsson á Þingskálum og er það aðdáunarvert hve Valgeir var iðinn að safna heimildum um ábúendur fyrr á árum.
Þá fræddi Ragnar okkur á manntali sem voru tekinhér á 18.öld. En svo fyrirskipaði konungur að bændur ættu að segja frá hvar þeir ætluðu að leggja inn vörur sínar og hefur það verið nær undantekningalaust á Eyrarbakka sem var aðal verslunarstaðurinn á þeim tíma.
Eftir Ragnar Böðvarsson eru komnar út bækurnar Landeyingabók um A-Landeyjar, Landmannabók um gamla Landmannahrepp, Holtamannabók 1 um Holtahrepp, Holtamannabók 2 um Ásahrepp pg síðan er í vinnslu Holtamannabók 3 um Djúpárhrepp.
Eftir kaffihlé snerum við okkar að spánni. og þá er það Verslunarmannahelgin.
Steini spáir góðu, meinlausu og gagnslausu eins og hann komst að orði.
Hrefna segir svipað áfram milt
Dúna segir að þorni upp úr Versl.m.helgi
Guðni á Þverlæká von á góðri Versl.m.helgi en skúrum
Bjarnhéðinn segist búast við roki og rigningu
Billi segir ágúst verða blautan, en gæti hangið þurr um ferðahelgina góðu
Maggi Kj. spáði ágætis veðri en rekju
Jón Helgason sagði með glottiað hann verði svona þar til hann breytir
að lokumspáði Ragnar að um Versl.m.helgina yrði rakt en eftir hádegi á sunnudeginum muni létta til og endast svoleiðis í hálfan mánuð.
Að endingu var Guðni með góða vísu í fórum sínum
Það er illt en opinbert
með ótíðarspánni marga svekki
því er ætið þakkarvert
þegar spáin rætist ekki.
Kl. 17.10 var veðurfundi slitið sem 18 manns sátu.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001