| |
2.2.2012 12:37 Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að vinna í.
Viðtalstími menningarfulltrúa í Rangárþingi ytra verður þriðjudaginn 7. febrúar kl. 11:00 - 13:00 á skrifstofu svetiarfélagsins, Suðurlandsvegi 1 á Hellu.
Lesa meira... |
31.1.2012 18:34 Hótel Rangá besta sveitahótelið í Evrópu 2011
Hótel Rangá náði þeim frábæra árangri að hljóta viðurkenningu Alþjóðlegu hótelverðlaunanna sem besta sveitahótelið í Evrópu árið 2011.
Rangárþing ytra óskar eigendum og starfsfólki til hamingju með þennan frábæra árangur!
Frétt úr Morgunblaðinu fylgir hér:
Lesa meira... |
31.1.2012 07:58 Sveitarstjórnarfundur
28. fundur hreppsnefndar Rangárþings ytra, á kjörtímabilinu 2010 - 2014, verður haldinn að Suðurlandsvegi 1, Hellu, fimmtudaginn 2. febrúar 2012, kl. 15:00. Lesa meira... |
27.1.2012 08:30 Álagningarseðlar fasteignagjalda 2012
Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2012 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út með landpósti eins og venja hefur verið. Frá og með 25. janúar 2012 geta fasteignaeigendur nálgast álagningarseðil sinn á upplýsinga- og þjónustuveitunni Ísland.is (vefslóð er http://www.island.is). Auðkenning á Ísland.is er með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum. Lesa meira... |
26.1.2012 15:08 Um sorpmálin
1. desember 2011 breyttist fyrirkomulag á meðferð heimilissorps og endurnýtanlegs úrgangs í Rangárvallasýslu. Sorpstöð Rangárvallasýslu heldur utanum verkefnið fyrir sveitarfélögin í sýslunni Stærsta breytingin var sú að öll heimili í sýslunni fengu tvær tunnur, aðra fyrir óflokkaðan/óendurvinnanlegan heimilisúrgang og hina fyrir þurrt og hreint efni til endurvinnslu. Lesa meira... |
25.1.2012 14:20 Námskeið um varmadælur
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum vekja athygli á námskeiði um
varmadælur sem haldið verður á Austurvegi 56 á Selfossi föstudaginn 24.
febrúar nk. Á námskeiðinu, sem er á vegum Iðunnar, eru notkun varmadæla kynnt og farið verður í uppbyggingu, gerðir, tengingar, stillingar og lokafrágang við uppsetningu þeirra.
Lesa meira... |
25.1.2012 11:09 Hagsýni og hamingja
Deildir Rauða kross Íslands á Suðurlandi, í samstarfi við kirkjur
Suðurprófastsdæmis, kvenfélagasamböndin og verkalýðsfélög á
Suðurlandi, standa fyrir stuttum og gagnlegum fræðslufyrirlestrum fyrir
almenning
Fyrirlesari er Lára Ómarsdóttir fréttakona, sem á einfaldan og auðskiljanlegan hátt kynnir okkur raunhæfar leiðir til sparnaðar.
Lesa meira... |
19.1.2012 20:14 Jón Ingi Guðmundsson lætur af störfum
Um síðastliðin áramót var komið að kveðjustund hjá Jóni Inga Guðmundssyni, starfsmanni eignaumsjónar sveitarfélagsins. Jón hefur starfað hjá sveitarfélaginu frá árinu 1989 en hann lét af starfi vegna aldurs.
Kveðjukaffi var haldið fimmtudaginn 19. janúar 2012 Jóni til heiðurs og honum færð gjöf frá sveitarfélaginu. Forsvarsmenn sveitarfélagsins ávörpuðu Jón og þökkuðu honum fyrir sín störf fyrir sveitarfélagið og þakkaði Jón fyrir sig með stuttri ræðu.
Starfsmenn sveitarfélagsins þakka Jóni Inga fyrir samstarfið og óska honum velfarnaðar á komandi árum.
Meðfylgjandi mynd sýnir þegar Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri, færði Jóni Inga Guðmundssyni gjöf frá sveitarfélaginu.
Lesa meira... |
9.1.2012 13:08 Lokun á skrifstofu Lokað n.k miðvikudag og fimmtudag
Nú er verið að vinna að uppsettningu á nýju bókhaldskerfi fyrir sveitarfélagið. Nýja kerfið er komið í notkun og mun það breyta vinnslu við bókhaldið töluvert. Mikið mun draga úr notkun á pappír og mun kerfið bjóða upp á frekari rafrænar afgreiðslur á málum. Starfsfólk skrifstofu mun þurfa að sækja námskeið á nýja kerfið og verður því skrifstofan lokuð á miðvikudag og fimmtudag, þann 11-12 janúar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum kunna vera sökum þessa. Tekið verður við tölvupóstum og verða þeir afgreiddir eins og áður.
Skrifstofa Rangárþings ytra.
|
16.12.2011 17:50 Til sveitarstjórna Rangárþings ytra og Ásahrepps frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Í greinargerð, sem send var sveitarstjórnum 29.
nóvember sl. var greint frá fyrirhuguðum aðgerðum til að mæta kröfum um
útgjaldalækkun Heilbrigðisstofnunar Suðurlands vegna fjárlaga fyrir árið
2012. Velferðarráðuneytið
hefur nú staðfest, að ákveðin leiðrétting verði gerð á fjárveitingu til
stofnunarinnar, umfram það sem kemur fram í nýsamþykktum fjárlögum
fyrir árið 2012. Það veldur því, að hægt verður að draga úr þeirri
útgjaldalækkun, sem frumvarp til fjárlaga gerði kröfu til. M.a.
verður því hægt að falla frá áður fyrirhugaðri lokun
heilsugæslustöðvarinnar á Hellu. Þrátt
fyrir framangreinda leiðréttingu þarf engu að síður að draga verulega
úr útgjöldum HSu. Því verður ekki komist hjá endurskipulagningu á
þjónustu stofnunarinnar. Áfram verður unnið að þeirri
endurskipulagningu í sem bestu samráði við stjórnendur og starfsmenn
stofnunarinnar og aðra hagsmunaaðila.
Lesa meira... |
7.12.2011 10:22 Styrkir til bættrar einangrunar - Átaksverkefni 2011 Umsóknarfrestur er til 28.12.2011 Iðnaðarráðuneytið í samvinnu við Orkusetur hefur ákveðið að styrkja húseigendur sem ráðast vilja í endurbætur á einangrun húsnæðis í þeim tilgangi að draga úr orkunotkun og þar með kostnaði við upphitun þess er beint að húsnæði sem byggt er fyrir 1945, áður en lágmarkskröfur til einangrunargilda (U-gilda) byggingarhluta voru settar í byggingarreglugerðir.
Um styrk getur sótt hver sá eigandi húsnæðis (byggt fyrir 1945) sem fær húshitunarkostnað sinn niðurgreiddan úr ríkissjóði. Upphæð styrks til einstakra verkefna getur numið allt að kr. 600.000 en þó aldrei hærri upphæð en 50% af innkaupsverði efnis.
Lesa meira... |
1.12.2011 08:40 Yfirlýsing frá sveitarstjórnum Rangárþings ytra og Ásahrepps
 Sveitarstjórnir Rangárþings ytra og Ásahrepps mótmæla harðlega yfirlýsingu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) um að loka eigi Heilsugæslustöðinni á Hellu. Heilsugæslustöðin á Hellu þjónar íbúum á stóru svæði í Rangárvallasýslu, hátt í 2.000 íbúum, hátt í 500 húsa sumarbústaðabyggð auk gríðarlegs fjölda ferðamanna. Að auki er Stjórnstöð Almannavarna og fjöldahjálparstöð staðsett á Hellu. Í fréttatilkynningu HSU dags. 29. nóvember 2011 voru hvorki lögð fram fagleg eða fjárhagsleg rök til stuðnings þessari tillögu. Það er því mikilvægt að þau verði unnin af óháðum fagaðilum og lögð fram. Lesa meira... |
27.11.2011 23:28 Þú ert að skila málmum í endurvinnslu SORPA er byrjuð að flokka málma úr blönduðu heimilissorpi
Þegar þú setur niðursuðudósina, álpappírinn, og brotnu
teskeiðina í ruslatunnuna ertu í raun að skila þessum málmum til endurvinnslu. Í vetur var settur upp vélbúnaður í
móttökustöð SORPU í Gufunesi sem flokkar með sjálfvirkum hætti málma frá
almennu heimilissorpi. Með þessu móti er ekki þörf á sérstakri flokkunaraðstöðu
á heimilum fyrir smáa málmhluti og minna þarf að fara með á gámavöllinn. Málmar
eru um 3 % af heimilissorpi á hverjum tíma og því mjög jákvætt að ná þessum
verðmætum úr sorpinu með lítilli fyrirhöfn og kostnaði. SORPA flokkar málmana
enn frekar í framhaldinu, þannig er
t.d. járn , ál og
kopar aðgreint sem tryggir betra
verð fyrir vikið. Flestir málmarir eru endurunnir í málmbræðslum á Bretlandi og
Spáni. Eftir bræðslu eru málmarnir markaðsvara
og notkunarmöguleikar óendanlegir, kannski gítarstrengur eða frambretti á bíl.
Lesa meira... |
23.11.2011 16:42 Aðventuhátíð á Laugalandi - 27. nóvember 2011
 Aðventuhátíð kl:13:00-16:00 sunnudaginn 27.nóvember að Laugalandi Holtum.
Handverksmarkaður, tombóla, tónlistaratriði, kynning á
bókum og geisladiskum, veitingasala og kökubasar.
Sýning á handunnum teppum.
Dagskrá:
kl: 13:00 Hátíðin sett
kl: 13.15 Flautuleikur, Kvartett Rangænga
Kl:13:30 Kveikt á fyrsta aðventuljósinu
Kl:14:00 Tónlistarval Laugalandsskóla, undir stjórn
Eyrúnar Jónasdóttur
Kl:14:20 Jólasveinar koma í heimsókn
Kl:14:30 Kveikkt á jólatrénu og hugvekja, sr. Halldóra
Þorvarðardóttir
Tombólan vinsæla er á sínum stað og
handverksmarkaður með fjölbreyttu handverki.
Lesa meira... |
23.11.2011 09:02 Breytingar á lögheimili
Tilkynning frá Þjóðskrá. Vakin er athygli á að tilkynningar um breytingar á
lögheimili þurfa að berast eigi síðar en miðvikudaginn 7. desember svo
unnt sé að tryggja að einstaklingar séu rétt skráðir í íbúaskrá miðað
við 1. desember þessa árs. Breytingu
á lögheimili skal tilkynna til Þjóðskrár Íslands með netskilum innan 7
daga frá flutningi eða til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er
til. Eyðublöð vegna flutningstilkynninga er að finna á slóðinni http://skra.is/pages/1017
Lesa meira... |
10.11.2011 08:58 Íbúafundir um breytta sorphirðu og sorpflokkun í Rangárvallasýslu
 Kynningarfundir á vegum Ásahrepps, Rangárþings eystra , Rangárþings ytra og Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. um breytta tilhögun sorphirðu og sorpflokkun í Rangárvallasýslu, sem taka á gildi 1. desember n.k. verða haldnir sem hér segir:
22. nóvember 2011 kl. 14:00 á Heimalandi
22. nóvember 2011 kl. 20:30 í Félagsheimilinu Hvoli
24. nóvember 2011 kl. 14:00 á Laugalandi
24. nóvember 2011 kl. 20:30 í Grunnskólanum á Hellu. Lesa meira... |
3.11.2011 14:02 Íbúafundur vegna fjárhagsáætlunar 2012 7. nóvember 2012 Kl. 20.30 Boðað er til opins íbúafundar vegna vinnu við fjárhagsáætlun Rangárþings ytra fyrir árið 2012. Fundurinn verður haldinn í íþróttahúsinu á Hellu, mánudaginn 7. nóvember nk. og hefst kl. 20:30.
Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri
Lesa meira... |
2.11.2011 14:21 Nýtt fyrirkomulag sorphirðu í Rangárvallasýslu
 Bætt umhverfi - betri framtíð í Rangárþingi
Nú standa yfir breytingar í úrgangsmálum í Rangárþingi í kjölfars útboðs á sorphirðu. Þann 24. október sl. undirrituðu fulltrúar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu þjónustusamning við forsvarsmenn Gámakó ehf. (dótturfyrirtæki Gámaþjónustunnar hf.) vegna sorphirðu í Rangárvallasýslu.
Í samstarfi við Gámakó hafa sveitarfélögin sem standa að Sorpstöð Rangárvallasýslu ákveðið að stórauka endurvinnslu og endurnýtingu með því að leggja til svokallaða Blátunnu (Endurvinnslutunnu) fyrir hvert heimili í sveitarfélögunum. Einnig munu sveitarfélögin leggja til tunnu fyrir annan heimilisúrgang fyrir þau heimili sem ekki eru með slíka tunnu fyrir.
Starfsmenn sveitarfélaganna munu dreifa þessum tunnum nú í nóvember og eru íbúar hvattir til að finna góða staðsetningu með það í huga að auðvelda aðkomu að sumri sem vetri. Miðað er við að fjarlægð íláta við íbúðarhús sé ekki meira en 20 metrar frá söfnunarbíl. Mjög mikilvægt er að tunnur séu vel varðar fyrir veðri en jafnframt er mikilvægt að þessar varnir séu ekki hindrun fyrir þá sem sorphirðunni sinna.
Nýtt sorphirðukerfi með hinum nýja þjónustuaðila mun byrja 1. desember nk.
Lesa meira... |
1.11.2011 09:43 Skemmdarverk unnin á öryggis- og eftirlitsbúnaði á Hellu Aðfararnótt sunnudagsins 30. október voru unnin skemmdarverk á hraðahindrunum og eftirlitsmyndavél á Hellu. Í langan tíma haf íbúar kvartað yfir hraðakstri á götum bæjarins og hefur sveitarfélagið brugðist við með því að setja niður hraðahindranir úr einingum á hættulegustu staði. Um helgina voru alls átta einingar fjarlægðar úr hraðahindrununum við Þrúðvang og Freyvang og einni eftirlitsmyndavél í eigu sveitarfélagsins var stolið. Lesa meira... |
27.10.2011 19:32 Safnahelgi á Suðurlandi 2011 4. - 6. nóvember
Safnahelgi á Suðurlandi verður haldin dagana 4. - 6. nóvember. Fjölbreyttir menningarviðburðir í gangi um allt suðurland sem vert er að skoða.
Hér er dagskráin í heild sinni: Dagskrá
Lesa meira... |
20.10.2011 15:45 Vinnuverndarvikan 2011 - Ráðstefna 25. okt. nk.
Markmiðið
með vinnuverndarvikunni er að vekja athygli á ákveðnum þáttum í
vinnuumhverfinu í þeim tilgangi að gera vinnustaðina heilsusamlegri og
öruggari. Eins og árið 2010 beinist kastljósið að öryggi við
viðhaldsvinnu.
Á ráðstefnunni sem fram fer í Gullteig A-sal, verða flutt áhugaverð
erindi og efni sem fjalla um öryggi við viðhaldsvinnu. Einnig verða
veittar viðurkenningar til fyrirtækja sem talin eru standa sig vel á því
sviði sem tengist viðhaldsvinnu.
Í kaffihléi ráðstefnunnar gefst gestum tækifæri til að kynna sér það sem
fyrirtæki og þjónustuaðilar hafa uppá að bjóða á því sviði sem tengist
viðhaldsvinnu.
Þeir sem hafa áhuga á vinnuvernd og öruggri viðhaldsvinnu ættu ekki láta
þennan atburð fram hjá sér fara. Takið strax frá tíma milli 13.00 og
16.00 þann 25. október 2011.
Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér.
Lesa meira... |
30.9.2011 23:23 Ómar og Sveitasynir með Karlakór Rangæinga 29. október á Hellu
Þann 29. okt. næstkomandi munu Ómar Diðriks. og Sveitasynir og Karlakór Rangæinga leiða saman
hesta sína á fyrstu tónleikunum í nýju menningarhúsi að Dynskálum 8 á Hellu.
Vinnuheiti tónleikanna er „Öðruvísi en áður“
sem verða orð að sönnu því Guðmundur Eiríksson, píanóleikari Sveitasona,
hefur raddsett nokkur af þeirra lögum fyrir karlakórinn en einnig er verið
að vinna að nýjum og skemmtilegum útsetningum fyrir Sveitasyni og
Karlakór á lögum sem áður hafa heyrst. Einnig hefur lekið út að
einhverjir blásarar úr Stórsveit Suðurlands munu koma við
sögu á þessum skemmtilega viðburði.
Lesa meira... |
24.9.2011 17:33 Safnahelgi á Suðurlandi
 Safnahelgin verður haldin í fjórða skipti 4.-6. nóvember.
Söfn, setur, veitingastaðir, kaffihús, listamenn, handverksfólk, sýningarsvæði og allir sem hafa áhuga geta verið með.
Skrá þarf þátttöku þar sem eftirfarandi kemur fram:
Hvar viðburðurinn verður:
Hvenær:
Heiti:
Lýsing (1-2 setningar):
Tengiliður, nafn, síma, netfang, heimasiða
Lesa meira... |
22.9.2011 09:31 Opnun miðrýmis á Hellu
1. hæð miðrýmis við Suðurlandsveg 1-3 á Hellu var tekin í
notkun föstudaginn 16. september síðastliðinn. Bakaríið Kökuval hefur nú flutt starfsemi sína
í þetta nýja og glæsilega húsnæði en einnig er aðalinngangur að heilsugæslunni
og matvöruverslun Kjarvals í gegnum miðrýmið.
Iðnaðarmenn eru að leggja lokahönd á frágang
jarðhæðar hússins þessa dagana og stefnt er að 2. hæð miðrýmisins verði tilbúin til leigu í október. Áætlað er að ný fólkslyfta hússins verði tilbúin
til notkunar í desember en með tilkomu hennar verður aðgengi fatlaðra að
verslun og þjónustu við Suðurlandsveg 1-3 stórbætt. Húsið verður opnað
formlega þegar þessum framkvæmdahlutum er lokið.
Lesa meira... |
12.9.2011 14:09 Fréttatilkynning vegna fráveitumála Rangárþings ytra
Eins og kom fram í fjölmiðlum í síðustu viku þá varð
tæknilegt óhapp við losun á úrgangi frá Reykjagarði á Hellu, sem átti að
fara til förgunar á Strönd. Þessi mistök urðu þess valdandi að úrgangurinn fór í fráveitukerfi sveitarfélagsins og barst í Ytri Rangá, veiðimönnum til ama.
Þetta var slys og um einangrað tilvik að ræða. Strax
og sveitarfélaginu varð þetta ljóst var leitað til allra fyrirtækja á
Hellu sem losa úrgang af þessu tagi og farið yfir öryggismál til að
fyrirbyggja að svona geti gerst aftur. Ekki fannst neitt ábótavant hjá
fyrirtækjunum. Rangárþing ytra er með
aðgerðaáætlun til úrbóta í fráveitumálum og mun þetta slys engu breyta
þeirri áætlun. Fyrr á þessu ári var fjárfest í skólphreinstöð sem
fjarlægja mun allt fast efni úr frárennsli. Til stóð að búnaðurinn yrði
settur upp fyrir sumarið en hann barst því miður ekki í tíma og af
tilliti við ferðaþjónustuaðila á svæðinu var ákveðið að standa ekki í
framkvæmdum í sumar. Innan tíðar verður hafist handa við uppsetningu
búnaðarins og verður það gert í samráði við Heilbrigðiseftilit
Suðurlands. Þetta atvik er harmað af sveitarfélaginu og þau óþægindi sem hafa skapast í kjölfar þess. Engin
sýnileg ummerki um slysið eru lengur á árbakkanum. Ytri Rangá er
náttúruperla og þetta slys mun ekki breyta því að hún verður áfram
aðdráttarafl fyrir veiðimenn og náttúruunnendur um ókomna tíð. Guðfinna Þorvaldsdóttir, Oddviti Rangárþings ytra
Lesa meira... |
17.8.2011 10:07 Skólasetning grunnskólans á Hellu

Skólasetning verður í íþróttahúsinu miðvikudaginn 31. ágúst kl. 11:00.
Skólaakstur mun hefjast frá og með þeim degi.
Kennsla hefst samkvæmt stundatöflum fimmtudag 1. september.
Foreldrar / aðstandendur 1. bekkinga athugið að umsjónakennari
bekkjarins mun hafa samband við ykkur bréfleiðis varðandi upphaf
skólastarfsins. Sjá nánar á www.grhella.is
Lesa meira... |
12.8.2011 15:17 Töðugjöld 2011
 Bæjarhátíðin Töðugjöld verður haldin í Rangárþingi ytra helgina 12.- 14. ágúst. Hátíðin er haldin af íbúunum sjálfum fyrir íbúa og velunnara. Fjölbreytt dagskrá er í boði fyrir börn og fullorðna og verður góða skapið við stjórnvölinn. Lesa meira... |
29.7.2011 15:21 Bætt aðgengi að verslun og þjónustu
 Málefni Suðurlandsvegar 1-3 ehf. hafa ratað inn á héraðsfréttamiðla síðustu vikur. Það sem fréttnæmt þykir er að stjórn félagsins hafði tekið ákvörðun um að bæta aðgengi að byggingunni og vegna þess þurfti hlaðinn veggur á lóð framan við húsið að víkja. Lesa meira... |
27.7.2011 18:05 Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra árið 2011
 Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra voru afhent í Árhúsum á Hellu í síðustu viku. Verðlaunin voru veitt fyrir snyrtilegustu lóðir og garða í sveitarfélaginu og voru staðirnir opnir almenningi um síðustu helgi. Verðlaunað var fyrir fjóra flokka; Lesa meira... |
6.7.2011 19:46 Eyðibýli á Íslandi
 Í sveitum landsins er fjöldinn allur af eyðibýlum og öðrum yfirgefnum íbúðarhúsum sem mörg hver eru vel byggð og geyma merka sögu. Ástand þeirra er mjög misjafnt en mörg þeirra er þó enn hægt að gera upp og nýta. Sett hefur verið af stað verkefni sem felur í sér rannsókn á menningarlegu vægi þessara húsa, björgun þeirra, endurgerð og nýtingu. Fyrstu skref verkefnisins eru tekin í sumar. Þau fela í sér að hefja rannsókn á fjölda, ástandi og eignarhaldi þessara gömlu húsa á Suður- og Suðausturlandi. Aðstandendur verkefnisins eru Gláma– Kím arkitektastofa, R3- Ráðgjöf og Ómar Bjarki Smárason jarðfræðingur. Verkefnisstjórar eru Gísli Sverrir Árnason og Sigbjörn Kjartansson.
Lesa meira... |
1.7.2011 17:40 Gönguleiðir, reiðleiðir og veiði á Holtamannaafrétti Rafrænir bæklingar
Teiknistofan Steinsholt sf. hefur unnið að gerð bæklinga vegna útivistarmöguleika á Holtamannaafrétti fyrir Rangárþing ytra og Ásahrepp. Eins og sakir standa er aðeins hægt að nálgast bæklingana á rafrænu formi og er hlekkurinn inn á kynningarsíðu Steinsholts sf. hér að neðan.
http://www.steinsholtsf.is/Sida.asp?id=18
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér efnið og nota það en fyrirhugað er að gefa það út á pappírsformi fyrir árið 2012.
Allar ábendingar varðandi kortin eru vel þegnar og best er að koma þeim beint til Ingibjargar Sveinsdóttur á netfangið ingibjorg@steinsholtsf.is merktum "Útivist á Holtamannaafrétti". Lesa meira... |
29.6.2011 20:37 Landsmót harmonikufélaga
 Landsmót harmonikufélaga verður haldið á Hellu dagana 30. júní til 3. júlí næstkomandi í boði Harmonikufélags Rangæinga, sannkölluð fjölskylduhátíð. Íþróttahúsið á Hellu verður vettvangur mótsins. Lesa meira... |
15.6.2011 09:41 Vinnuskólinn
 Í morgun 15. júní, lagði vaskur hópur vinnuskólafólks upp í ferð frá Þjónustumiðstöð Rangárþings ytra og er ferðinni heitið að Kirkjubæjarklaustri og nágrenni til að aðstoða fólk og fyrirtæki á öskufallsvæðunum við að þrífa fyrir þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Hugmyndin að verkefninu er komin frá krökkunum sjálfum og sýnir ótvírætt að hugarfarið hjá unga fólkinu okkar er í góðu lagi. Við óskum þeim góðrar ferðar og velgengni í störfum sínum. |
8.6.2011 17:23 Tengibygging Suðurlandsvegi 1-3
 Það er kunnara en frá þarf að segja að mikil óvissa hefur verið um framtíð tengibyggingar á milli Suðurlandsvegar 1 og 3 á Hellu. En nú er farið að rofa til og er undirbúningur við framkvæmdir kominn af stað. Selhús ehf., sem eru aðalverktakar, eru byrjaðir á undirbúningi fyrir lokaáfanga og stefnt er að því að ljúka framkæmdum við lóð og opna fyrstu hæð eins fljótt og auðið er.
Lesa meira... |
3.6.2011 11:10 Takk Hella
 Í gær komu hingað á Hellu hlauparar í hlaupahópnum "Á meðan fæturnir bera mig" þar sem hlaupið er til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Fyrsti áfangi í hlaupinu var frá Reykjavík til Hellu. Á heimasíðu hlaupsins kemur eftirfarandi fram:
Lesa meira... |
31.5.2011 10:15 Skólagarðar á Hellu 2011 fyrir nemendur 1.-7. bekkjar
 Skólagarðar verða starfræktir á Hellu í sumar fyrir börn í 1. – 7. bekk þar sem þau geta ræktað sitt eigið grænmeti með hjálp foreldra og forráðamanna.
Staðsetning: Norðan við Hjúkrunarheimilið Lund Hefst: 6. júní 2011
Kostnaður: 3.000 á garð (systkini geta verið saman með garð)
Innifalið í kostnaði: Um 10m2 garður, áburður, 1 kg af útsæði, forræktaðar plöntur af nokkrum tegundum (rófur, hnúðkál, brokkolí o.fl.) ásamt fræi af gulrótum og rauðrófum.
Fyrirkomulag: Plöntur og fræ verða til afhendingar mánudaginn 6. júní kl. 13-18. Þá mæta börnin ásamt foreldrum sínum, fá garð og hjálpast að við að gróðursetja og sá. Mikilvægast er að koma plöntunum strax niður. Fjölskyldur koma með sín eigin verkfæri, en gott er að hafa meðferðis vinnuvettlinga, litla skóflu, hjólbörur og garðkönnu. Mikilvægt er að merkja garðana með skilti og svo má skreyta til að gera garðana fallegri.
Ath. Engin gæsla verður í skólagörðunum.
Skráning fer fram þann 1.-3. júní á skrifstofu Rangárþings ytra s: 488-7000 (Iða Brá). |
30.5.2011 07:45 Breyttur opnunartími Skrifstofa Rangárþings ytra Opnunartími skrifstofu Rangárþings ytra verður frá kl.10.00 til 15.00 frá og með 1 júní n.k. Sveitarstjóri |
25.5.2011 14:50 Sundlaugin á Hellu opin á ný
 Sundlaugin á Hellu hefur verið opnuð aftur eftir atburði síðustu daga. Hreinsunarstörf hafa gengið vel og vonumst við til að ekki komi til frekari óþæginda vegna öskunnar úr Grímsvatnagosinu.
Allir í sund. :-) |
23.5.2011 15:51 Áhrif Grímsvatnagossins í Rangárþingi ytra
 Skólahald hefur verið með skipulögðum hætti í dag í Rangárþingi ytra þrátt fyrir að þykkt öskuský hafi legið hér yfir í gær og í nótt. Í dag hefur blásið nokkuð að norðan og öskunnar gætir því ekki eins þó svo hún liggi yfir öllu og fjúki um.
Sundlaugin á Hellu er svört af ösku og ákveðið hefur verið að halda henni lokaðri þar til hægt verður að hreinsa hana og halda henni hreinni. Náttúruöflin ein ráða þar ferð en allir pottar hafa verið hreinsaðir og verður reynt að hafa þá opna á meðan á þessum ósköpun stendur. Fólk getur því mætt í íþróttamiðstöðina og skolað af sér öskuna þó svo sundspretturinn verði að bíða um sinn. Lesa meira... |
17.5.2011 17:23 Við gerum gönguleið!
Við gerum gönguleið! Hópur áhugafólks í samstarfi við sveitarfélagið okkar undirbýr lagfæringar á gönguleiðinni frá Hellu að Ægissíðufossi: Leggja möl á stíginn, setja upp bekki og koma fyrir skiltum með myndum af fuglum á svæðinu.
Fyrri áfangi: Laugardaginn 21. maí kl. 10:00: Leggjum möl á stiginn. Mæting við Árhús.
Seinni áfangi: Laugardagur 4. júní kl. 14:00: Ljúkum við að malarbera, setjum upp skilti með myndum af fuglum á svæðinu og komum fyrir bekkjum.
Sjálfboðaliðar óskast! Sjálfboðaliðar eru beðnir að tilkynna þátttöku til Jóns Ragnars Björnssonar í síma 8949953 eða í netfangið nonni@bbiceland.com.
Að vel heppnuðu verki loknu - 4. júní - grillum við saman í Árhúsum!
Lesa meira... |
17.5.2011 17:16 Opið hús í Sagnagarði Landgræðslunnar 19. maí 2011 kl. 16-19
Í tilefni af opnun Sagnagarðs Landgræðslunnar, sem er fræðslu– og kynningarsetur um landgræðslu, verður opið hús fyrir héraðsbúa fimmtudaginn 19. maí n.k. kl. 16 ‐ 19.
Landgræðsla ríkisins
Lesa meira... |
13.5.2011 11:29 Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Hellu
Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður haldið dagana 13. til 14. maí 2011 á Hellu. Þingið verður sett föstudaginn 13. maí kl. 14:00. Á föstudagskvöldinu verður grill og gleði og á laugardagskvöldinu verður haldin vegleg árshátíð félagsins. Björgunarleikar fara svo fram á laugardeginum. Nánari upplýsingar um þingið er að finna undir Landsþingsborðanum efst á forsíðu heimasíðu Landsbjargar. |
7.5.2011 22:59 Bikarleikur KFR 9. maí 2011
 KFR stendur fyrir knattspyrnuveislu á Helluvelli
n.k. mánudag 9.maí. Þar verða þjálfarar með knattþrautir og æfingar
fyrir alla yngri flokka félagsins frá kl.16:00-18:00. Að þeim
loknum bjóða Kökuval og SS upp á grillaður pylsur fyrir krakkana. Þegar
krakkarnir eru búnir að borða þarf koma sér fyrir í brekkunni við
völlinn til þess að horfa á einn stærsta leik hjá meistaraflokki KFR,
sem leikinn hefur verið. Þar mætir KFR - HK í annarri umferð Valitor
bikarsins. Leikurinn hefst kl. 19:00. HK liðið leikur í 1.deild en
ljóst er að okkar menn gefa ekkert eftir í baráttunni. Rangæingar, nú er lag að styðja sína menn! ALLIR Á VÖLLINN!! ÁFRAM KFR!!!
Lesa meira... |
3.5.2011 09:06 Upplýsingamiðstöð í Rangárþingi ytra
Samkvæmt afgreiðslu á 16. fundi sveitarstjórnar hefur sveitarstjóra verið falið í samvinnu við formann atvinnu- og menningarmálanefndar að auglýsa eftir rekstraraðilum sem vilja taka að sér að reka upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn í sveitarfélaginu árið 2011.
Skilyrði er að upplýsingamiðstöðin sé staðsett á Hellu, internetaðgangur sé á staðnum og að opið sé alla daga vikunnar á tímabilinu 15. júní - 15. ágúst.
Áhugasamir hafi samband við skrifstofu Rangárþings ytra í síma eða tölvupósti fyrir 15. maí 2011. Símanr: 488-7000 Tölvupóstfang: rang@rang.is |
19.4.2011 21:14 Sundlaugin Hellu - Opið alla páskana frá 12 til 18 - Áheitasund!
 Miðvikudaginn 20. apríl næstkomandi klukkan 20:00 er áætlað að áheitasundi starfsmanna Íþróttamiðstöðvarinnar ljúki. Af því tilefni ætlar Ómar Diðriks að mæta á bakkann með gítarinn og spila nokkur lög milli 19:00 og 20:00.
Við hvetjum ykkur til að fjölmenna í laugina og pottana og fylgjast með sundgörpunum taka síðustu metrana.
Við viljum þakka þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem hafa þegar styrkt okkur og minnum á að reikningur Kormáks er enn opinn og verður eitthvað áfram :)
Rnr. 0308-26-004702 og Kt. 470211-0400
Sjáumst í sundi - Starfsfólk Lesa meira... |
Eldri fréttir
|
 |
|