| |
5.3.2010 20:25 Engar fyrirvaralausar hamfarir yfirvofandi Skjálftavirkni í Eyjafjallajökli Eldgos myndi valda litlum skaða
Sérfræðingar meta minni líkur en meiri á eldgosi í Eyjafjallajökli, þrátt fyrir skjálftavirkni síðustu daga. Engar líkur eru á fyrirvaralausu hamfaraflóði sem myndi ógna öryggi íbúa svæðisins. Eldgos í Eyjafjallajökli hafa yfirleitt verið minniháttar, kraftlítil og valdið óverulegum skaða. Engar heimildir eru um mannskaða. Lesa meira... |
5.3.2010 19:26 Auglýsing frá Kjörstjórn Rangárþings ytra
Kjörfundur í Rangárþingi ytra, 6. mars 2010. Kjörfundur í Rangárþingi ytra vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010, verður haldinn í Grunnskólanum á Hellu og hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00. Athygli kjósenda er vakin á skyldu á að sýna persónuskilríki ef kjörstjórn óskar þess. Kjörstjórn Rangárþings ytra. |
5.3.2010 11:33 Sölumenn dauðans, forvarnarfundur
Miðvikudaginn 24.febrúar síðastliðinn var haldinn í Safnaðarheimilinu á Hellu forvarnarfundur í boði foreldrafélaga Hvolsskóla, Grunnskólans á Hellu og Laugalandsskóla. Yfirskrift fundarins var "Sölumenn dauðans" og hefur það greinilega hreyft við fólki því fullt var út úr dyrum og öll sæti nýtt. Þrír fyrirlesarar voru með stutt erindi hver og síðan voru pallborðsumræður eftir hlé. Það voru þeir Stefán Steinsson læknir, Ellert Ingvarsson frá lögreglunni og Jón Þór Kvaran dagskrástjóri og ráðgjafi frá Götusmiðjunni sem fluttu þessi erindi. Eftir kaffihlé og fínar veitingar frá 10.bekk Grunnskólans á Hellu hófust pallborðsumræðurnar. Lesa meira... |
22.2.2010 12:06 Dagný Brynjarsdóttir íþróttamaður ársins
Sunnudaginn 21.febrúar voru afhend verðlaun fyrir íþróttamann ársins 2009 í Rangárþingi ytra.
Fyrir valinu var knattspyrnukonan úr Val, Dagný Brynjarsdóttir.
Snæbjört Ýrr Einarsdóttir varaformaður íþrótta- og tómstundanefndar afhendi Dagnýju verðlaunin og ræddi við gesti um hversu mikilvægt það er að hafa fyrirmynd í nafni íþróttamanns ársins.
Hún sagði einnig meðal annars í ræðu sinni:
Lesa meira... |
8.2.2010 14:28 Dagur Leikskólans
 Sjötti febrúar er „Dagur leikskólans“, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín og því er félagið nú 60 ára. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn bar að þessu sinni upp á laugardag og því fögnuðum við honum síðastliðinn föstudag 5. febrúar með því að halda náttfataball fyrir börnin og mála þau í framan. Lesa meira... |
11.1.2010 13:43 Félagsmiðstöðin opnaði 12. janúar
 Þriðjudaginn 12. janúar byrjaði vorönnin hjá félagsmiðstöðinni Hellirinn. Byrjað var að skipuleggja dagskránna með unglingunum og nýjir starfsmenn tóku til starfa.
Árni Björn Árnason og Ína Karen Markúsdóttir munu tóku við keflinu af Inga Hlyn, Evu Ýr og Erlu Sóldís sem hafa fundið sér ný verkefni.
Stærsta verkefni vorannarinnar er Samféshátíðin sem er 5. - 6.mars. Lesa meira... |
8.1.2010 17:48 Aðalskipulag Rangárþings ytra Breytingar í meðförum sveitarstjórnar Á fundi hreppsnefndar þann 17. desember sl. var samþykkt að óska eftir heimild til auglýsingar á aðalskipulagi Rangárþings ytra, í samræmi við lög sem um það gilda. Nokkrar breytingar urðu á tillögu sveitarstjórnar á síðustu skrefum skipulagsvinnunnar. Lesa meira... |
11.12.2009 11:50 Ungmennaráð hittir sveitarstjóra
Síðastliðinn miðvikudag 9.desember hitti ungmennaráð sveitarfélagsins Rangárþing ytra Örn Þórðason sveitarstjóra.
Þar fékk ráðið tækifæri á að spyrja Örn spjörunum úr. Tókst fundirinn mjög vel og rætt var löngum stundum um íþróttamál og framtíð sveitarfélagsins. Hæst bar umræðan um uppbyggingu á aðstöðu fyrir íþróttirnar, bæði utanhúss og innan og ráðinu fannst einnig að íþróttafélögin ættu að vinna meira saman svo þeir unglingarnir og börn sem áhuga hafa á að æfa reglulega geti gert það þó sveitarfélagið sé stórt. Lesa meira... |
25.11.2009 15:37 Körfuboltinn í uppsveiflu
 Um helgina fór fram í íþróttahúsinu á Hellu riðlakeppni í 9.flokki stráka. Lið UMF.Heklu tók þar á móti liðum frá Þór Akureyri, Breiðablik og ÍR.
Við vorum sem sagt að keppa á Íslandsmótinu í körfubolta í 9. flokki karla. Það var haldið hér á Hellu. Við spiluðum fyrsta leikinn við Þór Akureyri, hann vannst 49-42, næst spiluðum við við Breiðarblik B og töpuðum honum 51-33, svo í síðasta leik spiluðum við við ÍR og töpuðum honum 35-39 eftir æsi spennandi leik. Lesa meira... |
20.11.2009 10:59 Aðalskipulag Rangárþings ytra
Almennur fundur var haldinn þann 23. nóvember sl. vegna kynningar á nýju Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022. Fundurinn var haldinn í Íþróttahúsinu á Hellu.
Á fundinum kynnti skipulagsráðgjafi nýja tillögu og síðan voru umræður um aðalskipulagið. Fundurinn var vel sóttur, en um 60 manns mættu á fundinn og voru umræður líflegar.
Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér tillöguna og koma athugasemdum á framfæri á netfang sveitarfélagsins: rang@rang.is .
Örn Þórðarson, sveitarstjóri |
16.11.2009 15:29 Ingó og Veðurguðirnir í Þykkvabæ
Þriðjudaginn 3.nóvember síðastliðinn var haldinn seinni hluti tónleikanna "Tvennan" sem er samstarfsverkefni félagsmiðstöðvarinnar og Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu. Verkefni þetta var styrkt af Menningarráði Suðurlands, Lýðheilsustöð og Rangárþingi ytra.
Með þessum styrkjum gátum við í annað sinn boðið öllum félagsmiðstöðvum á Suðurlandi á þessa tónleika. Þarna voru mætt yfir 300 unglingar af öllu Suðurlandi. Lesa meira... |
2.11.2009 15:50 Fyrsti fundur ungmennaráðs Rangárþings ytra
Ungmennaráð Rangárþings ytra hélt sinn fyrsta fund miðvikudaginn 28.október síðastliðinn. Ráðið er skipað fulltrúum frá grunnskólunum Laugalandi og Hellu ásamt fulltrúa frá FSU. Ungt fólk á aldrinum 15 - 20 ára með lögheimili í sveitarfélaginu skipar ráðið.
Aðalfulltrúar ráðsins eru: Narfi Þorbergsson FSU og formaður, Fríða Hansen og Vala Rún Valtýsdóttir frá Laugalandsskóla, Reynir Óskarsson og Heimir Smári Heimisson frá Helluskóla.
Á fyrsta fundi voru málefni félagsmiðstöðvarinnar og íþróttir á dagskrá. Lesa meira... |
30.10.2009 11:07 Fríða vann söngkeppni félagsmiðstöðvarinnar
Þar sem undankeppni Samfés á suðurlandi nálgast óðum hélt Félagsmiðstöðin Hellirinn á Hellu undankeppni sína þann 29.október. Keppnin var gríðarlega jöfn og spennandi en að lokum var það Fríða Hansen sem bar sigur úr bítum. Hún söng lagið Don''''''''t Want to Miss a Thing með Aerosmith.
Lesa meira... |
23.10.2009 17:48 Tvöfaldur íslandsmeistari og bikarmeistari
Hún Dagný Brynjarsdóttir hefur staðið sig með eindæmum vel á knattspyrnuvellinum í sumar. Hún varð íslandsmeistari með 2. flokki Vals og Íslandsmeistari með meistarflokki kvenna í sumar og bætti síðan Visabikarmeistartitli við í sumarlok. Dagný sem er uppalin á Hellu og rétt orðin 18 ára, á að baki samtals 26 landsleiki, bæði fyrir U17 og U19 landliðunum. Dagnýju eru færðar hamingjuóskir með þennan frábæra árangur og ekki síður þakklæti fyrir þá fyrirmynd sem hún er börnum og unglingum í sveitarfélaginu.
Lesa meira... |
17.10.2009 20:29 Vatnsleki á skrifstofu sveitarfélagsins Tjón með minnsta móti
Í vatnsveðrinu síðustu daga, hefur lekið umtalsvert á skrifstofu sveitarfélagsins. Mestur hefur lekinn verið á skrifstofu sveitarstjóra. Vandræðin hófust seinni partinn á föstudaginn, 16. okt. sl. í rigningunni sem þá lagðist yfir Suðurland. Boð komu frá Öryggismiðstöðinni um að ekki væri allt með felldu. Starfsmenn skrifstofunnar og þjónustumiðstöðvarinnar brugðust skjótt við og forðuðu verðmætum frá skemmdum. Í kjölfarið var farið að leita að uppruna lekans, en það gekk fremur illa. Það voru síðan starfsmenn Rauðáss verktakafyrirtækisins, sem vinnur við byggingu tengibyggingarinnar við hlið sveitarstjórnarskrifstofunnar, sem fundu uppruna lekans, síðdegis á laugardeginum. Tjón virðist hafa verið með allra minnsta móti. Lesa meira... |
12.10.2009 15:24 Ingó og veðurguðirnir í Þykkvabæ
Félagsmiðstöðin Hellirinn og Flugbjörgunarsveitin á Hellu eru með samstarfsverkefni sem heitir "Tvennan". Tvennir tónleikar fyrir 8-10 bekk grunnskóla.
Fyrri hlutinn var 11.desember síðastliðin í íþróttahúsinu á Hellu, en þá kom hljómsveitin Á móti sól og skemmti ásamt hljómsveitum úr Rangárþingi.
Seinni hlutinn verður núna þriðjudaginn 3.nóvember 2009 í íþróttahúsinu í Þykkvabæ kl.19:30-23:00. Samið hefur verið við hljómsveitina Ingó og veðurguðina sem mun halda uppi fjöri það kvöld. Lesa meira... |
15.9.2009 21:00 Suðurlandsvegur 1-3 Tengibygging Tilboð í áfanga 2 opnuð Opnuð voru tilboð í áfanga 2. vegna byggingar tengibyggingar milli Suðurlandsvegar 1 og 3 á Hellu. Tilboð frá 13 aðilum bárust og voru þau öll talsvert lægri en kostnaðaráætlun hönnuða gerði ráð fyrir, en hún var að upphæð kr. 300.802.520,-. Lægsta tilboðið var frá Selhúsum ehf. á Selfossi, að upphæð kr. 214.408.635,- eða um 71% af kostnaðaráætlun. Næst lægsta tilboðið barst frá Trésmiðju Ingólfs að upphæð kr. 217.182.355,- Verkfræðistofan Verkís mun á næstu dögum yfirfara tilboðin. Lesa meira... |
13.9.2009 15:18 Ferð um Friðland að Fjallabaki Stýrihópur um skipulagsmál ferðast um hálendið
Farið var í Friðland að Fjallabaki þriðjudaginn 2. september sl. Ferðin var liður í vinnu við endurskoðun aðalskipulags fyrir sveitarfélagið. Það voru þeir Þorgils Torfi Jónsson og Sigurbjartur Pálsson úr stýrihópnum sem fóru, en Ólafur E. Júlíusson forfallaðist á síðustu stundu og kom Sigfús Davíðsson í hans stað í ferðina. Töluverður fjöldi annarra aðila fór með í ferðina, s.s. fulltrúar úr sveitarstjórn, samgöngunefnd, hálendisnefnd, fjallskilanefnd, Friðlandsnefnd og frá Vegagerðinni. Einnig byggingar- og skipulagsfulltrúi. Ekki komust allir með í ferðina og er önnur ferð fyrirhuguð síðar með fulltrúum Umvherfisstofnunar, Ferðamálastofu og fleiri aðila sem tengjast skipulagsmálum á hálendinu og landnotkun þar. Lesa meira... |
13.9.2009 15:06 Evrópski þróunarbankinn í heimsókn
Fulltrúí Evrópska þróunarbankans leit við í heimsókn í Rangárþing ytra á fimmtudaginn var. Með í för voru fulltrúar Lánasjóðs Sveitarfélaga. Þeir staðir sem heimsóttir voru í sveitarfélaginu, eru leikskólarnir á Laugalandi og Heklukot á Hellu. Einnig var Laugalandsskóli heimsóttur og sundlaugin á Hellu. Það voru viðkomandi stjórnendur sem tóku á móti fulltrúa þróunarbankans og fóru yfir starfssemi stofnana sinna. Lesa meira... |
6.9.2009 19:44 Nýr umsjónarmaður á Strönd
Ráðinn hefur verið umsjónarmaður á urðunarstaðnum Strönd. Ómar Sigurðsson, sem áður starfaði í þjónustumiðstöð sveitarfélagsins hóf störf þann 1. ágúst sl. Af því tilefni fundaði stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu á Strönd í byrjun mánaðarins og var skoðunarferð stjórnarmanna um urðunarsvæðiðmeðal dagskrárliða. Ásýnd svæðisins hefur tekið nokkrum breytingum sem miða að því að draga úr neikvæðum áhrifum starfsseminnar. Samþykkt var að lagfæra geymslusvæði á Strönd og verða breytingar þar að lútandi kynntar innan skamms. Lesa meira... |
6.9.2009 19:27 Samgöngunefnd skoðar styrkvegi
Samgöngunefnd sveitarfélagsins fór í ferð um sveitarfélagið í þeim tilgangi að skoða styrkvegi og taka ákvarðanir varðandi framkvæmdir í framtíðinni. Ferðin hófst í Reynifellslandi, þaðan var ekið að Fossi, í gegnum Gunnarsholt að upp Kotveg (Heklubraut) þaðan yfir í Réttarnes, að Þjófafossi og niður í Skarfanes. Með þessari leiðarlýsingu má segja að þarna hafi vegir sem áætlað er að verði lagfærðir á næstunni verið skoðaðir. Búið er að lagfæra veginn inn að Króki á Rangárvallaafrétti, upp Faxa, og ætti hann að vera fær öllum sæmilega útbúnum jeppum og jafnvel fjórhjóladrifnum fólksbílum . Réttara er samt að huga vel að aðstæðum áður en lagt er í ferðalög á þessum árstíma. Lesa meira... |
22.8.2009 12:25 Ferð um Holtamannaafrétt Vetrarlegt í Vonarskarði
Hreppsnefnd Rangárþings ytra fór á föstudaginn í ferð um Holtamannaafrétt ásamt hreppsnefnd Ásahrepps. Farið var vítt og breytt um afréttinn og skoðaðir markverðir staðir. Meðal annars var komið við í Vonarskarði í austasta hluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar var ansi vetrarlegt um að litast eins og myndin sýnir. Á myndinni sjást hreppsnefndarmenn horfa til fjallsins Deilis, en þar liggja sýslumörk Rangárvallasýslu og Suður-Þingeyjasýslu. Lesa meira... |
16.8.2009 11:17 Best skreytta húsið á Töðugjöldum Breiðalda 2 á Hellu
Sigurvegari í keppni um best skreytta húsið á Töðugjöldum var útnefndur á kvöldvökunni á laugardagskvöldið. Dómnefndina skipuðu þeir Simmi og Jói, en þeir notuðust við flókin en vel útfærð viðmið, í dómstörfum sínum. Sigurvegari keppninnar í ár var Breiðalda 2 á Hellu. Heimilisfólkinu, þeim Svani, Ragnhildi og Margréti eru færðar bestu hamingjuóskur og þakkir fyrir framlag sitt. Verðlaunin voru grill frá Húsasmiðjunni. Öllum öðrum sem skreyttu hús sín og hverfi eru sömuleiðis færðar þakkir. Lesa meira... |
14.8.2009 13:46 Töðugjöld á Hellu Sumarhátíð á Gaddstaðaflötum
Sumarhátíð er nú haldin um helgina á Gaddstaðaflötum við Hellu. Töluverður fjöldi gesta er þegar mættur á hátíðarsvæðið í blíðskaparveðri. Búast má við að gestum fjölgi eftir því sem líður á daginn og helgina. Hápunkti nær Sumarhátíðin á laugardagskvöldið þegar Töðugjöld verða haldin. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má finna á slóðinni: www.rangarhollin.net Lesa meira... |
6.8.2009 14:49 Streetball mót á Sumarhátíð á Hellu 15. ágúst
Körfuknattleiksdeild Heklu stendur fyrir Streetballmóti í samstarfi við Sumarhátíð á Hellu 2009.
Keppt verður á fjórum völlum sem verða staðsettir á Gaddstaðaflötum þar sem hátíðin fer fram. Keppt verður í tveim aldursflokkum, 15 ára og yngri og 16 ára og eldri. Spilað verður 3 á 3 þar sem öll lið mega vera með einn skiptimann, hámark fjórir í liði.
Leikið verður í 10 mínútur eða upp í 7.
Lesa meira... |
20.7.2009 22:24 Fréttablaðskössum misjafnlega tekið
Fréttablaðinu er nú dreift um Hellu í Fréttablaðskössum sem settir hafa verið upp á vel völdum stöðum. Hugmyndin með kössunum er að koma blaðinu nær lesendum á Hellu. Áður hafði blaðinu verið dreift í verslun Kjarvals og Olís. Á sumrin þegar ferðamannatíðin stendur sem hæst hafa heimamenn oft gripið í tómt. Til að bæta þjónustu við íbúa Hellu heimilaði sveitarfélagið uppsetningu blaðastanda, eða Fréttablaðskassa víðsvegar á Hellu. Um tilraunaverkefni er að ræða. Lesa meira... |
20.7.2009 22:14 Líkamsræktarstöð vel tekið á Hellu Heimsmet í áhuga á líkamsrækt?
Líkamsræktarstöð Nautilus var opnuð í kjallara sundlaugarinnar á Hellu í dag. Undirtektir heimamanna fóru langt fram úr björtustu vonum aðstandenda. Yfir eitt hundrað manns keyptu árskort á fyrsta degi. Reiknað er með að ræktendum eigi eftir að fjölga á öðrum degi, en fyrstu tvo daga opnunarinnar gildir sérstakt tilboðsverði í ræktina. Af fádæma góðum undirtektum má ætla að margir íbúar Hellu hafi talið sig hafa þörf fyrir líkamsrækt. Lesa meira... |
16.7.2009 15:21 Landréttir í Réttarnesi
 Það var fagurt um að litast við Landréttir í Réttarnesi í dag, þegar sveitarstjóri og formaður samgöngunefndar fóru í skoðunarferð um Landsveit. Landréttir voru í Réttarnesi frá 1660 og fram til 1980, þegar Hekla gaus. Síðan þá hafa Landmenn réttað í Áfangagili. Áhugarverða lýsingu á Landréttum í Réttarnesi má finna á heimasíðu Leirubakka, á slóðinni http://www.leirubakki.is/Default.asp?Page=327 |
16.7.2009 14:59 Fámennt en góðmennt
Það er fámennt á Leikskólanum Heklukoti þessa dagana. Sumarfrí foreldra og barna standa sem hæst. Þau voru því ekki mörg börnin í leikskólanum sem léku sér í góða veðrinu á Hellu í dag. |
15.7.2009 11:02 Eyjólfur landshöfðingi 150 ára
Minnisvarði um Eyjólf Guðmundsson frá Hvammi í Landsveit hefur verið reistur við félagsheimilið Brúarland. Tilefnið er að minnast þess að 150 ár eru liðin frá fæðingu Eyjólfs, sem nefndur hefur verið Landshöfðingi. Eyjólfur var oddviti í hartnær 60 ár, frumkvöðull í baráttu gegn uppblæstri og landeyðingu, samfélagsbótum, efnahagsuppbyggingu og almennum framförum. Lesa meira... |
14.7.2009 17:23 Nemendur Landgræðsluskólans hjá sveitarstjóra
Nemendur Landgræðsluskólans, sem er þróunarverkefni unnið í samvinnu Landgræðslunnar og Landbúnaðarháskóla Íslands, heimsóttu skrifstofur sveitarstjórnar. Tilgangurinn var að afla upplýsinga varðandi vísindaverkefni sem unnið er i háskólanum. Það voru nemendur frá Ghana og Uganda sem voru við samanburðarrannsóknir á viðhorfum til ýmissa umhverfisþátta, annars vegar hér á landi og hins vegar í heimalöndum nemendanna. Lesa meira... |
14.7.2009 11:15 Framkvæmdir við tengibyggingu ganga vel
Framkvæmdir við tengibyggingu milli Suðurlandsvegar 1 og 3 í miðbæ Hellu ganga vel. Það er verktakafyrirtækið Rauðás ehf. sem sér um framkvæmdina. Húsnæðinu er meðal annars ætlað að bæta aðgengi að verslunar- og þjónustuhúsnæði við Suðurlandsveg 1 og 3. Þar er verslunin Kjarval, Lyf og heilsa, heilsugæslustöð, tannlæknastofa, nuddstofa, skrifstofur sveitarfélagsins, Verkalýðsfélag Suðurlands, Lífeyrissjóður Rangæinga, Landnot landfræðiþjónusta. Lesa meira... |
30.6.2009 14:02 Fótboltaæfing á Hellu fyrir afreksleikmenn
Síðastliðin föstudag var haldin á knattspyrnuvellinum á Hellu fótboltaæfing fyrir afreksleikmenn frá Selfossi og KFR. Þetta voru efnilegustu strákarnir í báðum félögunum, leikmenn fæddir 1992-1995.
Það var sænski þjálfarinn Eijlert Björkman sem er þjálfari hjá IFK Gautaborg sem hélt æfinguna. Eijlert er hér á landi í boði samstarfsklúbbs KFR, Selfoss.
Æfingin gekk mjög vel og voru þjálfarar og stjórnarmenn frá báðum félögunum að fylgjast með. Lesa meira... |
26.6.2009 12:58 Klipparinn Ómar Diðriks í tónlistarferð
Klipparinn okkar hann Ómar Diðriksson söngvaskáld hefur verið á ferðinni í sumar og spilað um alla sýsluna lög eftir sjálfan sig og aðra.
Hann verður á faraldsfæti um suðurland í júlí mánuði . Ómar ætlar að halda þrenna tónleika í júlí. Þá fyrstu í Gömlu Borg í Grímsnesi laugardaginn 4/7 kl 14:00. Síðan á eða við Kvöldstjörnuna á Sokkseyri 11/7 kl:16:00 og endar á Kaffi Langbrók í Flótshlíð laugardaginn 18/7 kl:16:30.
Ókeypis er á alla tónleikana og þeir eru ætlaðir öllum aldurshópum. Með Ómari verða þeir Rúnar Þór Guðmundsson sem leikur á slagverk, gítar, og raddbönd og Halldór Halldórsson sem plokkar bassann og röddina en þeir hafa báðir komið að öllum diskum Ómars sem eru að verða þrír. Það eru Uppörvun gefin út 1996, Vinur veganna gefinn út 1998 og verið er að leggja lokahönd á þann þriðja sem á að heita Ómar hversdags og kemur vonandi út á þessu ári.
Lesa meira... |
25.6.2009 15:15 Opnun Hellismannaleiðar
Fimmtudaginn 25 júní var formlega opnuð ný stikuð gönguleið frá Rjúpnavöllum rétt fyrir ofan Galtalæk og inn að Landmannalaugum. Leiðin mun vera um 56 km. og skiptist í þrjár dagleiðir. Lesa meira... |
11.6.2009 15:40 Félagsmiðstöðin komin í sumarfrí
Síðasta opnunardagur félagsmiðstöðvarinnar Hellirinn var síðasta fimmtudag 4.júní.
Starfsfólkið vildi koma kveðjum til allra barna og unglinga í sveitarfélaginu og þakka fyrir frábæran vetur og vor. Mikil aðsókn og fjör hefur verið að Hellirnum allan tímann og starfsfólkið vonast eftir því að sama fjör verði næsta haust og vetur.
Kristinn Ingi, Eva Ír og Erla Sóldís þakka fyrir sig og bjóða alla velkomna aftur þegar skóli byrjar í haust.
GLEÐILEGT SUMAR!!!! |
5.6.2009 14:31 Sundleikfimi á Laugalandi
Guðni Sighvatsson íþróttafræðingur er með góðan hóp kvenna í vatnsleikfimi í hverri viku og hefur verið síðan í apríl.
Þetta eru konur sem aðallega eru úr holtunum og ásahrepp en einnig hafa slæðst með konur úr öðrum hornum sýslunnar. Þær hafa mætt tvisvar í viku og tekið hraustlega á og er mál manna að bingó vöðvinn hafi aldrei verið jafn stæltur og nú. Hópurinn telur um 17 manns og gerðust þau tíðindi um daginn að fyrsti karlmaðurinn steig sín fyrstu vatnsleikfimi spor við mikla hrifningu hópsins sagði Guðni. |
3.6.2009 14:30 Tilboð í tengibyggingu opnuð Fyrsti áfangi - 1 uppsteypa Í dag kl 14.00 voru opnuð tilboð í sem bárust í uppsteypu á tengibyggingu á milli Suðurlandsvegar 1 og 3 á Hellu. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 83.781,271kr.
Lægsta tilboðið barst frá Rauðás ehf. á Hellu og hljóðaði það upp á 39.943,483 kr. Tilboðin eru hér að neðan. 1. Rauðás ehf Hellu 39.943,483 kr.
2. Byggingarfélagið Laski ehf. 61.040,115 kr.
3. Byggingarfélagið Hamar ehf. 57.450,000 kr.
4. Fínsmíði ehf. 64.689,440 kr.
5. Fonsi ehf. 55.001,524 kr.
6. TAP trésmiðja 54.555,266 kr.
7. HG mót ehf. 48.162,623 kr.
8. JÁ verk ehf. 57.357,537 kr.
9 Rangá ehf. 65.199,900 kr.
10. Smíðandi ehf. 44.694,200 kr.
11. Sérbyggð ehf. 79.404,504 kr.
12. Trésmiðja Ingólfs ehf. 49.894,423 kr.
13. Húsbygg ehf. 46.233,046 kr. Lesa meira... |
2.6.2009 13:57 Líkamsræktarfyrirtækið Nautilus á Hellu
 Föstudaginn 29.maí var undirritaður leigusamningur milli sveitarfélagsins Rangárþings ytra og líkamsræktarfyrirtækisins Nautilus. Samningurinn felur í sér að Nautilus setur upp líkamsræktarstöð í kjallara íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu. Þetta verður áttunda stöðin á Íslandi. Það var sveitarstjórinn Örn Þórðason og Kjartan Már Hallkelsson frá Nautilus á Íslandi sem skrifuðu undir.
Lesa meira... |
28.5.2009 16:32 Vorhátíð Leikskólans að Laugalandi
Vorhátíð Leikskólans að Laugalandi var haldin í gær, þriðjudaginn 26. maí sl. í einmuna blíðu. Hátíðin þótti takast einstaklega vel og skemmtu börn og fullorðinir sér mjög vel. Í ár var tekið upp á þeirri nýbreytni að óska eftir fjárframlögum frá foreldum og fyrirtækjum til að standa straum af kostnaði vegna hátíðarinnar og fjöruferðarinnar sem verður í júní. Skemmst er frá því að segja að viðbrögð voru vonum framar og vill stjórn foreldrafélags leikskólans þakka öllum þeim sem styrktu foreldrafélagið með myndarlegum fjárframlögum. Lesa meira... |
23.5.2009 14:44 Auglýsing um skipulagsmál
Skipulagstillögur varðandi íbúðalóðir í landi Helluvaðs, deiliskipulag við Álftavatn, frístundabyggð í landi Litla Klofa, fyrir Heiðarlæk og Pulutjörn eru í auglýsingaferli hjá Skipulags- og byggingarfulltrúaembætti Rangárþings bs.
Skipulagsuppdrætti má finna á slóðinni hér fyrir neðan:
http://www.rangarthingytra.is/skipulags--og-byggingarmal/auglysingar/ |
20.5.2009 19:44 Sveitarstjórnarfundur á Heklusetrinu Hreppsnefndarfundur á Leirubakka
Sveitarstjórn fundaði á Leirubakka í dag 20. maí 2009. 42. fundur hreppsnefndar var haldinn í Heklusetrinu á Leirubakka á Landi. Meginverkefni fundarins var að afgreiða endurskoðað aðalskipulag sveitarfélagsins fyrir 2008 - 2020, og senda í lögformlegt umsagnaferli. Íbúar sveitarfélagsins og aðrir áhugasamir um skipulagsmál geta kynnt sér endurskoðað aðalskipulag eins og það var afgreitt frá sveitastjórn í dag á Leirubakka.
Lesa meira... |
14.5.2009 09:59 Laus störf í heimaþjónustu Hefurðu áhuga á að vinna með fólki og fyrir fólk?
Leitum að hressu og duglegu fólki, 18 ára og eldra, til að starfa við félagslega heimaþjónustu í Rangárþingi ytra. Um er að ræða létt þrif og félagslegt liðsinni til stuðnings við sjálfstæða búsetu fólks í heimahúsum. Bjóðum upp á tímabundið starf, hlutastarf og sveigjanlegan vinnutíma, allt eftir samkomulagi. Lesa meira... |
12.5.2009 22:36 Lampi Aladíns á Rangárvöllunum
Það voru furðulegar skýjamyndir sem léku sér á Rangárvöllunum í rokinu kvöldið 12. maí sl. Þar mátti meðal annars sjá lampa Aladíns og andann stíga úr honum, geimskip og ýmislegt annað sem ímyndunarafl áhorfenda bauð upp á. Lesa meira... |
21.4.2009 20:35 Jákvætt viðhorf foreldra til skóla Grunnskólinn Hellu og Laugalandsskóli koma jákvætt út úr könnun
 Gerðar voru kannanir meðal foreldra nemenda í grunnskólum sveitarfélagsins, á Hellu og Laugalandi. Niðurstöður kannanana voru mjög jákæðar og foreldrar ánægðir með skólastarfið í heild. Sömuleiðis gagnvart flestum þáttum skólahaldsins. Viðhorf foreldra er jákvæðara í vetur en þegar sambærilegar kannanir voru gerðar fyrir nokkrum árum. Lesa meira... |
21.4.2009 20:31 Kjörskrá fyrir Alþingiskosningar liggur frammi Kjörskrá fyrir Alþingiskosningar 25. apríl 2009 liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins. Þeir sem vilja kynna sér efni hennar eða gera athugasemdir er bent á opnunartíma skrifstofu sveitarfélagsins milli 9 og 16 virka daga.
Kosið verður í Grunnskólanum á Hellu. |
1.4.2009 14:50 Félagsmiðstöðin Hellirinn með tónleika í Hellubíó
Mikið er að gerast í félagsmiðstöðinni Hellirinn núna síðustu tvo mánuði vetrarstarfsins. Samið hefur verið við eigendur Hellubíós um "Tvennu" tónleika sem er samstarfverkefni við Flugbjörgunarsveitina. Þar með er Hellubíó endurvakið sem félagsheimili fyrir fólkið í sveitarfélaginu. Eins og síðast þá verður öllum félagsmiðstöðvum á Suðurlandi boðið í heimsókn á þessa vímulausu tónleika.
Einnig er mikið að gerast á öðrum vígstöðvum í Hellirnum. Lesa meira... |
29.3.2009 19:39 Hella í fremstu röð Ljósleiðari á öll heimili á Hellu Öflugasta og hraðasta fjarskiptatenging sem völ er á
Ljósleiðarasamband er komið í hús á öllum heimilum á Hellu. Það var Gagnaveita Reykavíkur sem sá um framkvæmdina en hún var hluti af samkomulagi sveitarfélagsins við Orkuveitu Reykjavíkur þegar Hitaveita Rangæinga var seld árið 2004. Með ljósleiðarasambandi fást besta mögulegu gæði í gagnaflutningum. Hella hefur með því skipað sér í fremsta flokk byggðarlaga hvað varðar rafrænan gagnaflutning. Lesa meira... |
22.3.2009 17:35 Stúlka endurlífguð Snarræði og rétt viðbrögð starfsfólks í sundlauginni Hellu Virðist ekki hafa orðið meint af
Stúlkunni farnast vel og virðist ekki hafa orðið meint af slysinu. Það hefur komið fram í samtölum sem starfsfólk sundlaugarinnar hefur átt við foreldar barnsins.
Í fréttum á laugardaginn 22. mars var greint frá því að starfsfólki sundlaugarinnar á Hellu og sundlaugargestum hafi tekist að bjarga lítilli telpu sem fannst meðvitundarlaus á botni sundlaugarinnar. Lögreglan þakkaði það snarræði og réttum viðbrögðum starfsfólksins að það tókst að endurlífga stúlkuna. Stúlkan er á fimmta aldursári. Sundlaugargestur tók eftir því að hún lá á botni laugarinnar og kom henni upp úr. Starfsfólk sundlaugarinnar kom strax út og hóf endurlífgun með því að blása í hana og hnoða. Bar það árangur og var stúlkan komin til meðvitundar áður en sjúkralið og lögregla kom á vettvang um klukkan fjögur. Lesa meira... |
Eldri fréttir
|
 |
|