Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

Þjónusta  
   REGLUR UM LIÐVEISLU Í RANGÁRÞINGI YTRA.

1. gr.

Markmið liðveislu er að efla viðkomandi til sjálfsbjargar, veita honum persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.

2. gr.

Rétt til liðveislu eiga þeir sem eru andlega eða líkamlega fatlaðir og þarfnast sérstakrar þjónustu eða stuðnings af þeim sökum. Hér er átt við þroskahömlun, geðfötlun, heyfihömlun, sjón- og heyrnarskerðingu og búa utan stofnunar.

3. gr.

Félagsmálanefnd fer með stjórn liðveislu á vegum Rangárþings ytra í umboði sveitarstjórnar og í samráði við Félagsþjónustu Rangárvallasýslu.

4. gr.

Félagsþjónusta Rangárvallasýslu hefur með höndum daglega umsjón liðveislunnar í samráði við skrifstofu Rangárþings ytra.

5. gr.

Þörf fyrir liðveislu skal metin á grundvelli umsóknar til tveggja flokka. Annars vegar þyngri tilvik sem miðast við 16 klst. á mánuði og hins vegar léttari tilvik sem miðast við 10 klst. á mán. Við sérstakar aðstæður og að fengnu samþykki félagsmálanefndar og/eða sveitarstjórnar er heimilt að veita liðveislu umfram það sem hér segir. Við mat á umsóknum skal haft samráð við fulltrúa frá Svæðisskrifsskrifstofu um málefni fatlaðra og félagsmálastjóra.

6. gr.

Liðveisla er veitt tímabundið, mest 6 mánuði í senn.

7. gr.

Félagsmálastjóri ræður liðveitendur til starfa í samráði við skrifstofu Rangárþing ytra og eftir atvikum í samráði við fulltrúa frá Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra. Félagsmálastjóri og Svæðisskrifstofan veita liðveitendum faglegan stuðning og handleiðslu.

8. gr.

Liðveitendur taka laun frá Rangárþingi ytra og gilda þar samningar milli Launanefndar og viðkomandi stéttarfélags. Liðveitendum er óheimilt að taka við greiðslum eða gjöfum frá aðstoðarþegum. Liðveitendur eru bundnir þagnarskyldu um það sem þeir verða vísir um í starfi sínu um einkamál manna og heimilishald.

9. gr.

Skrifstofa Rangárþings ytra sér um launa- og kostnaðarhlið liðveislu.

10. gr.

Liðveitandi fær endurgreiddan útlagðan kostnað frá Rangárþingi ytra, enda hafi útgjöldin verið samþykkt fyrirfram.

11. gr.

Liðveitandi skal skila greinargerð um starf sitt og skal koma fram á ráðningarsamningi hversu oft greinargerð skal skilað.

12. gr.

Fyrir liðveislu skal greitt eftir gjaldskrá sem hreppsnefnd setur að fengnum tillögum frá Félagsmálanefnd.

13. gr.

Reglur þessar, sem settar eru skv. lögum nr. 59/1992 um málefni fatlaðra, voru staðfestar á fundi hreppsráðs Rangárþings ytra þ. 7. júní 2005 og öðlast þegar gildi.

 


GJALDSKRÁ FYRIR LIÐVEISLU 

Í RANGÁRÞINGI YTRA.

 

1. gr.

Fyrir liðveislu á vegum Rangárþings ytra skal greiða gjald sem nemur 1/2 meðaltímakaupi fyrir heimilisþjónustu fyrir hverja klst. Gjaldið skal reiknað út ársfjórðungslega, 1. janúar, 1. apríl, 1. júlí og 1. október og skal standa á hálfum eða heilum tug.

 

2. gr.

Undanþegnir gjaldskyldu vegna liðveislu skulu þeir vera, sem ekki hafa aðrar heimilistekjur en elli/örorkulífeyri, tekjutryggingu, heimilisuppbót og sérstaka heimilisuppbót frá almannatryggingum svo og þeir aðrir sem hafa samtals tekjur innan framangreindra marka. Staðfesta skal tekjur með vottorði frá Tryggingastofnun og staðfestu framtali fyrir næstliðið ár. Lífeyrisþegar greiða þó ekki hærra gjald fyrir heimaþjónustu en sem nemur 75% af tekjum umfram lífeyri, eins og hann er skilgreindur hér að framan.

 

3. gr.

Sveitarstjórn og félagsmálanefnd er heimilt að fella niður greiðslu eða hluta hennar ef efnahagur eða aðrar aðstæður gefa tilefni til.

 

4. gr.

Gjaldskrá þessi er sett skv. lögum nr. 59/1992 um málefni fatlaðra og öðlast þegar gildi.

 

Samþykkt í hreppsráði Rangárþings ytra þ. 9. janúar 2003.

 


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn