Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

Þjónusta  
 

Fráveitur í Rangárþingi ytra

Upplýsingar og aðstoð í símum 487 5284 og 863 5284


Fráveitan á Hellu hefur frá upphafi haft Ytri-Rangá sem viðtaka.  Ekki var talið áður fyrr, að þörf væri á því að hreinsa fráveituvatnið áður en það fór út í ána.  Um 1990 hófst átak um allt land í því að bæta ástand fráveitumála frá þéttbýliskjörnum og dreifðum byggðum.  Sett voru ákvæði í lög um hollustuhætti og mengunarvarnir og í mengurnarvarnareglugerð um lágmarkshreinsun fráveituvatns eftir eðli viðtakanna.

Unnið hefur verið að því síðustu árin að sameina allar útrásir frá Hellu í sniðræsi sem skal liggja að væntanlegri hreinsistöð.  Þetta verkefni er langt komið og er vonast til þess að ástand þessara mála á Hellu verði orðið innan marka ákvæða mengurnarvarnareglugerðar fyrir árslok 2005 eða þegar frestur til þess rennur út verði það síðar.  Verkefnið er mjög kostnaðarsamt og er mikið átak fyrir fámennt sveitarfélag.  Umhverfisráðuneytið veitir sveitarfélögum styrki vegna þessara verkefna sem nema 15 - 30% af framkvæmdakostnaði (ekki hönnunarkostnaði eða eftirliti).  Leitað hefur verið eftir meiri styrkjum frá ríkinu vegna sérstakra aðstæðna sveitarfélaga sem búa við mjög viðkvæma viðtaka og eru landlukt, eins og á við um Hellu, en ekki hefur fengist hljómgrunnur fyrir því ennþá.  Einnig hefur verið þrýst á ríkið um að frestur  til þess að ljúka við úrbætur á fráveitum verði framlengdur.

Þegar hafa verið gerð mikil átök í úrbótum í dreifbýli sveitarfélagsins.  Mikill meirihluti býla og sumarbústaða er með sín fráveitukerfi í góðu lagi.  Stefnt er að setningu samþykktar um losun og meðferð seyru sem taka mun á því hvernig staðið verður að losun rotþróa og meðferð úrgangsins.

Þessi verkefni falla undir þá málefnavinnu sem tilheyrir verkefninu "Staðardagskrá 21" og er liður í því að gera sveitarfélagið að umhverfisvænu svæði sem stuðlar að sjálfbærri nýtingu náttúrugæða.

Reglugerð nr. 786/1999 um mengunarvarnaeftirlit
Umhverfisráðuneytið
Umhverfisstofnun
Umhverfisvefurinn
Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998

 


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn