|
28.8.2010 12:01 Menningar, íþrótta og heilsudagur Rangárþings ytra 4. september 2010
4. september nk. frá kl: 10:00 til 12:00 verður
opið hús í íþróttahúsinu á hellu. þar munu þau íþróttafélög sem starfa í
sveitarfélaginu kynna starfsemi sína auk þess sem actic líkamsræktarstöðin í
kjallara sundlaugarinnar verður með kynningu og tilboð á árskortum. við leitum einnig til þeirra aðila sem hafa upp á
eitthvað að bjóða tengt menningu, íþróttum, heilsu og tómstundum að vera með
kynningu á sinni þjónustu að kostnaðarlausu. |
27.8.2010 08:53 Ný úrræði fyrir nýsköpunarfyrirtæki - Skattafrádráttur Umsóknarfrestur til 1. september fyrirtæki sem vilja nýta sér ný úrræði
sem fela í sér skattfrádrátt vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar og
skattafslátt til fjárfesta þurfa að sækja um staðfestingu hjá rannís sem
viðurkennd nýsköpunarfyrirtæki fyrir 1. september. | | 26.8.2010 18:43 Sumar í Odda - Gunnar Þórðarson 26. ágúst 2010 - Kl. 20:00 hinn mikli meistari og tónlistargúrú gunnar þórðarsson ætlar að loka
tónleikaröðinni "sumar í odda" þetta árið þegar hann mætir á
fimmtudaginn næsta og leikur og syngur brot af sinni tónlist, en þar er
af gífurlega miklu og fjölbreyttu efni að taka.þennan mann er óþarft að kynna frekar, hann er löngu orðinn goðsögn í lifanda lífi. látum þennan einstaka viðburð ekki framhjá okkur fara. kaffi og meðlætið margrómaða innifalið í 1500... króna aðgangseyri. bent er á að ekki er posi á staðnum. tónleikarnir hefjast kl. 20:00. börnin eru auðvitað alltaf sérstaklega velkomin, þeir eru alltaf mjög fjölskylduvænir tónleikarnir í odda. góða skemmtun! |


