8.1.2010 09:20
30. fundur byggingarnefndar Óstaðfest

Fundargerð

 30. fundur í Byggingarnefnd Rangárþings bs.,

miðvikudaginn 6. janúar 2010, að Ormsvelli 1, Hvolsvelli.

Mættir á fundinn sem var settur kl.17.00: Sigurbjartur Pálsson, Guðjón Sigurðsson, Sigfús Davíðsson, Eiríkur Davíðsson, Guðfinnur Guðmannsson,

Pálína Björk Jónsdóttir,  Björn Guðjónsson, Rúnar Guðmundsson bfltr.

og Árni Þorgilsson, sem ritaði fundargerð. Ágúst Kristjánsson boðaði forföll.

Dagskrá.

Rangárþing eystra

 

358-2010  Hvolstún 32,  Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir raðhúsi.

Naglafar ehf. kt. 550796-2449,  Berustöðum 2 Ásahreppi 851 Hellu, sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi að Hvolstúni 32, Hvolsvelli,  samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt.

 

359-2010  Borgareyrar Rangárþingi eystra – stöðuleyfi fyrir sumarhúsi.

Sævar Þór Guðmundsson kt. 200675-5339, Borgareyrum 861 Hvolsvelli, óskar eftir stöðuleyfi fyrir sumarhúsi að Borgareyrum í Rangárþingi eystra samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs.

 

360-2010  Hlíðarvegur 16, Rangárþingi eystra - leyfi fyrir fjarskiptabúnað.

Nova ehf, kt. 531205-0810 Lágmúla 9, 108 Reykjavík, sækir um leyfi fyrir að setja upp fjarskiptabúnað að Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Samþykkt.

 

361-2010  Kirkjuhvoll, Hvolsvelli - fyrirspurn vegna viðbyggingar.

Gylfi Guðjónsson, arkitekt, sækir um f.h. Rangárþings eystra, leyfi fyrir viðbyggingu við Dvalarheimilið Kirkjuhvol á Hvolsvelli.

Samþykkt.

 

362-2010 Þórsmörk, Rangárþingi eystra – leyfi fyrir upplýsingarskiltum.

Farfuglar HI Iceland kt. 440169-1559, Borgartúni 6, 105 Reykjavík, sækja um leyfi til að setja upp skilti á nokkrum stöðum í Þórsmörk, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Samþykkt, með fyrirvara um samþykki húseigenda í Húsadal. Byggingarnefnd óskar í framhaldinu eftir nánari útfærslu skiltanna.

 

 
Rangárþing ytra

363-2010  Rangárbakki 9, Rangárþingi ytra - byggingarleyfi fyrir reykhúsi.

Rauðás ehf. kt. 640506-0910, Nestúni 1, 850 Hellu, sækir um byggingarleyfi fyrir reykhúsi á lóð nr. 9 við Rangárbakka á Hellu, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Byggingarnefnd frestar afgreiðslu málsins.

 

364-2010  Kaldakinn, Rangárþingi ytra - stöðuleyfi fyrir móel-húsum.

Margrét Eggertsdóttir, kt. 040853-7669, Köldukinn, 851 Hellu, sækir um stöðuleyfi fyrir 6 móelhúsum að Köldukinn. Húsin eru staðsett í Köldukinn og verða gistiaðstaða fyrir ferðaþjónustu.

Erindinu er hafnað.

 

365-2010  Hólavangur 5, Rangárþingi ytra - leyfi til að endurnýja glugga og klæða hús.

Inga Jóna Kristinsdóttir, kt. 081066-3969, Hólavangi 5, Hellu, sækir um leyfi til að endurnýja glugga og klæða hús sitt að Hólavangi 5 á Hellu.

Samþykkt. Guðjón Sigurðsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

 

366-2010 Reyðarvatn lóð S-6, Rangárþing ytra – stöðuleyfi fyrir íbúðargámum.

Ólafur Sigurjónsson kt. 050959-7249, Herjólfsgötu 14, 220 Hafnarfirði, sækir um að framlengja stöðuleyfi fyrir tveimur íbúðargámum að Spámannsstöðum lóð S-6. Hann óskar einnig eftir að fyrri samþykkt um byggingarleyfi frá 2. desember 2009, verði fellt úr gildi.

Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs. Einnig er samþykkt að fella úr gildi fyrri samþykkt byggingarnefndar vegna byggingarleyfis frá 2. desember 2009.

 

Ekki fleira gert og fundi slitið kl. 18.30