Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

27.1.2012 08:30

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2012


Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2012 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út með landpósti eins og venja hefur verið. Frá og með  25. janúar 2012 geta fasteignaeigendur nálgast álagningarseðil sinn á upplýsinga- og þjónustuveitunni Ísland.is (vefslóð er http://www.island.is). Auðkenning á Ísland.is er með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum.  

Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í pósti er bent á að hafa samband við skrifstofu Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða að senda póst á netfangið asdis@ry.is. 

Gjalddagar fasteignagjalda eru átta. Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar 2012 en eftir það fyrsti dagur hvers mánaðar frá mars til september.  Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum síðar, eða síðasti dagur mánaðarins. 

Rafræn birting álagningarseðla  er bæði umhverfisvæn og hagkvæm leið til að koma upplýsingum til skila.

 Skrifstofa Rangárþings ytra


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn