Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

28.8.2010 12:01

Menningar, íþrótta og heilsudagur Rangárþings ytra

4. september 2010


4. September nk. frá  kl: 10:00 til  12:00 verður opið hús í íþróttahúsinu á Hellu. Þar munu þau íþróttafélög sem starfa í sveitarfélaginu kynna starfsemi sína auk þess sem Actic líkamsræktarstöðin í kjallara sundlaugarinnar verður með kynningu og tilboð á árskortum.

Við leitum einnig til þeirra aðila sem hafa upp á eitthvað að bjóða tengt menningu, íþróttum, heilsu og tómstundum að vera með kynningu á sinni þjónustu að kostnaðarlausu.

Það er von okkar að þessi dagur dragi fram  það góða starf og þjónustu sem er í boði í sveitarfélaginu varðandi þennan málaflokk og að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi í kjölfarið.

Í boði verður einnig að koma með uppástungur fyrir það sem íbúum finnst vanta varðandi þessi málefni í sveitarfélaginu.

Klukkan 13:00 verður rathlaup kynnt og keppt í þessari vinsælu íþrótt .

Allar nánari upplýsingar og skráningar eru hjá formanni íþrótta- og tómstundanefndar Guðna Sighvatssyni í síma 891-7898 og netfangið gudni10@gmail.com


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn