Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   
Nýjustu fréttir  
 

28.8.2010 12:01

Menningar, íþrótta og heilsudagur Rangárþings ytra

4. september 2010

4. September nk. frá  kl: 10:00 til  12:00 verður opið hús í íþróttahúsinu á Hellu. Þar munu þau íþróttafélög sem starfa í sveitarfélaginu kynna starfsemi sína auk þess sem Actic líkamsræktarstöðin í kjallara sundlaugarinnar verður með kynningu og tilboð á árskortum.

Við leitum einnig til þeirra aðila sem hafa upp á eitthvað að bjóða tengt menningu, íþróttum, heilsu og tómstundum að vera með kynningu á sinni þjónustu að kostnaðarlausu.

Lesa meira...

27.8.2010 08:53

Ný úrræði fyrir nýsköpunarfyrirtæki - Skattafrádráttur

Umsóknarfrestur til 1. september

Fyrirtæki sem vilja nýta sér ný úrræði sem fela í sér skattfrádrátt vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar og skattafslátt til fjárfesta þurfa að sækja um staðfestingu hjá Rannís sem viðurkennd nýsköpunarfyrirtæki fyrir 1. september.

Lesa meira..

    

26.8.2010 18:43

Sumar í Odda - Gunnar Þórðarson

26. ágúst 2010 - Kl. 20:00

Hinn mikli meistari og tónlistargúrú Gunnar Þórðarsson ætlar að loka tónleikaröðinni "Sumar í Odda" þetta árið þegar hann mætir á fimmtudaginn næsta og leikur og syngur brot af sinni tónlist, en þar er af gífurlega miklu og fjölbreyttu efni að taka.

Þennan mann er óþarft að kynna frekar, hann er löngu orðinn goðsögn í lifanda lífi.

Látum þennan einstaka viðburð ekki framhjá okkur fara.

Kaffi og meðlætið margrómaða innifalið í 1500... króna aðgangseyri.
Bent er á að ekki er posi á staðnum.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.

Börnin eru auðvitað alltaf sérstaklega velkomin, þeir eru alltaf mjög fjölskylduvænir tónleikarnir í Odda.

Góða skemmtun!

Lesa meira..


Fara á fréttasíðu

Fréttaveita
 


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn